KA/Þór tapaði með 10 marka mun fyrir Fram
KA/Þór tapaði 28:18 fyrir Fram í KA-heimilinu í dag efstu deild Íslandsmótsins í handbolta, Olísdeildeildinni.
Stelpurnar okkar hafa verið í mótbyr í vetur og eru í neðsta sæti með fimm stig. Þær hafa unnið tvo leiki í deildinni í vetur, annar þeirra var gegn Fram í Reykjavík og ljóst að gestirnir ætluðu sér ekki að þurfa að kyngja öðru tapi gegn Akureyringum í vetur. Leikurinn var að vísu jafn fram í miðjan fyrri hálfleik en þegar staðan var 5:5 gerðu Framarar sex mörk í röð. KA/Þór náði að laga stöðuna og í hálfleik var munurinn þrjú mörk, 12:9.
Í seinni hálfleik var aldrei spurning hver niðurstaðan yrði. Framarar náðu mest 12 marka forystu og 10 mörkum munaði í lokin sem fyrr segir.
Mörk KA/Þórs: Nathalia Soares Baliana 7, Lydía Gunnþórsdóttir 4 (öll úr víti), Aþena Sif Einvarðsdóttir 2, Anna Þyrí Halldórsdóttir 2, Rafaele Nascimento Fraga 2, Sólveig Lára Kristjánsdóttir 1.
Varin skot: Matea Lonac 14 (33,3%).
Smellið hér til að sjá alla tölfræðina.