Fara í efni
Pistlar

SÍMEY brautskráði sex af nýrri námsbraut

Frá brautskráningunni í SÍMEY. Frá vinstri: Karen Alda Mikaelsdóttir, Brynja Wanchinee Stefánsdóttir, Soffía Margrét Bragadóttir, Jenný Gunnarsdóttir verkefnastjóri, Ólöf Kristín Lin Örnólfsdóttir, Bertha Dögg Bouman Maríudóttir og Daníel Smári Bjarnason.

Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar brautskráði í vikunni sex nemendur á námsbrautinni Færni á vinnumarkaði. Þessi námsbraut var í fyrsta skipti í boði í SÍMEY og öðrum tíu símenntunarmiðstöðvum landsins núna á haustönn. Námið hefur það að markmiði að auka náms- og starfstækifæri fólks með fötlun.

Námið var skipulagt í samstarfi Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, Vinnumálastofnunar, Fjölmenntar og símenntunarmiðstöðvanna í landinu, þar á meðal SÍMEY. Bóklegur hluti námsins var í SÍMEY, samtals 70 klukkustundir, en starfsnámið, 110 klukkustundir, var á vinnustöðum. Nemendurnir sex tóku starfsnám sitt á Akureyri; á leikskólunum Kiðagili, Hulduheimum og Naustatjörn - hjá Fagkaupum (Johan Rönning, Ísleifur og Vatn og veitur), í Ráðhúsi Akureyrar og Hertex.

Jenný Gunnarsdóttir er verkefnastjóri og aðalkennari nemenda á þessari nýju námsbraut í SÍMEY. Hún segir um tilraunaverkefni að ræða og því hafi bæði kennarar og nemendur rennt nokkuð blint í sjóinn um útkomuna. En hún leyfi sér að fullyrða að niðurstaðan hafi verið afar jákvæð og ljóst sé að haldið verði áfram á sömu braut á næsta ári og komandi árum, námsbrautin Færni á vinnumarkaði sé komin til að vera.

Í bóklega hluta námsins er víða komið við, m.a. er horft til almennrar starfshæfni, vinnustaðamenningar, heilsueflingar, sjálfseflingar, geðræktar, samskipta, tímastjórnunar og færslu verkdagbóka.

Á vinnustöðunum fengu þátttakendur leiðsögn starfsmanna og vill Jenný verkefnastjóri koma á framfæri kærum þökkum til þeirra fyrir þátttöku í verkefninu, því án samstarfs við atvinnulífið væri verkefni af þessum toga ekki mögulegt.

Hrossafóður í morgunmat

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
19. apríl 2025 | kl. 06:00

Þjálfarinn tæklaður upp í stalla

Orri Páll Ormarsson skrifar
18. apríl 2025 | kl. 10:00

Snípur í skógi

Sigurður Arnarson skrifar
16. apríl 2025 | kl. 08:45

Hús dagsins: Aðalstræti 66a; Smiðjan

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
14. apríl 2025 | kl. 20:00

Njóli

Sigmundur Ernir Rúnarsson skrifar
14. apríl 2025 | kl. 11:00

Uss í görðum

Jóhann Árelíuz skrifar
13. apríl 2025 | kl. 06:00