Fara í efni
Pistlar

HSN rekin með 36 milljóna króna afgangi

Heilbrigðisstofnun Norðurlands, HSN, var rekin með 36 milljóna króna afgangi á árinu 2023. Þetta kom fram á ársfundi stofnunarinnar í liðinni viku. 

Í frétt HSN af fundinum segir meðal annars að árið hafi verið um margt gott hjá stofnuninni. Þrátt fyrir að HSN glími við áskoranir í mönnun, eins og aðrar heilbrigðisstofnanir, sé stofnunin afar heppin með starfsfólk sem helgi sig vinnunni og veiti fyrirtaks þjónustu. 

„Heilt yfir gekk árið vel, kannanir sýna að íbúar svæðisins treysta stofnuninni vel og mörg markmið hafa náðst. Framkvæmdastjórn horfir björtum augum til framtíðar. Á árinu 2024 hafa verið mörg mikilvæg verkefni, s.s. stefnumótun og flutningur í nýja heilsugæslustöð á Akureyri en jafnframt mun stofnunin fagna tíu ára afmæli. Framkvæmdastjórn HSN þakkar starfsfólki kærlega fyrir gott samstarf og góð störf í þágu íbúa á Norðurlandi árið 2023,“ segir meðal annars í frétt HSN.
 

Ársskýrsla stofnunarinnar er aðgengileg á rafrænu formi - sjá hérÍ pistli framkvæmdastjórnar í ársskýrslunni segir meðal annars um mönnunarvanda stofnunarinnar: „Miklar áskoranir voru við mönnun á heilbrigðismenntuðu starfsfólki á árinu og á það við um flestar starfsstöðvar stofnunarinnar. Ein af þeim aðgerðum sem gripið hefur verið til er að taka á móti fleiri nemum og læknum í sérnámi en fjárheimildir leyfa, með það í huga að byggja grunn undir mönnun, til dæmis heimilislækna. Til framtíðar eru meiri líkur á að fá fólk til starfa sem fær menntun í heimabyggð. Er þessi aðgerð byrjuð að skila árangri en breytingar á vinnumarkaði, nýjar kynslóðir með aðrar þarfir sem og fjölmenning krefjast nýrra áherslna og aðgerða og eru því spennandi áskoranir framundan.“

Bílnum stolið

Jóhann Árelíuz skrifar
23. febrúar 2025 | kl. 06:00

Féll af kústhestbaki

Orri Páll Ormarsson skrifar
21. febrúar 2025 | kl. 20:00

Vatnsmiðlun skóga

Sigurður Arnarson skrifar
20. febrúar 2025 | kl. 15:00

Jesús og Júróvisjón

Hildur Eir Bolladóttir skrifar
18. febrúar 2025 | kl. 12:30

Dýrtíð

Sigmundur Ernir Rúnarsson skrifar
17. febrúar 2025 | kl. 11:30

Kári og Skúli

Jóhann Árelíuz skrifar
16. febrúar 2025 | kl. 06:00