Fara í efni
Pistlar

Fertugur en síungur Síðuskóli – MYNDIR

Nemendur, forráðamenn þeirra og starfsmenn skólans fóru í skrúðgöngu um Síðuskóla í tilefni dagsins. Myndir: Skapti Hallgrímsson

Mikið var um dýrðir í Síðuskóla í dag þegar haldið var upp á 40 ára afmæli skólans. Að lokinni samkomu í íþróttahúsi skólans fóru nemendur, foreldrar og starfsmenn í skrúðgöngu um hverfið og síðan var boðið upp á afmælistertu og aðrar veitingar í matsal skólans.

Fyrstu íbúar flutti í Síðuhverfi í ársbyrjun 1979 en á árinu 1982 var fyrst farið að ræða af alvöru í skólanefnd um skóla í hverfinu að því er segir á vef Síðuskól. Ingólfur Ármannsson var settur skólastjóri 1. júní 1984 og kennsla byrjaði þá um haustið.

Þau fögnuðu afmælinu í dag. Frá vinstri: Jón Baldvin Hannesson skólastjóri 1987 til 1996, Hrefna Hjálmarsdóttir, ekkja Ingólfs Ármannssonar, fyrsta skólastjóra Síðuskóla 1984 til 1986, Sigríður Ása Harðardóttir sem lengi var aðstoðarskólastjóri og settur skólastjóri í eitt ár, Ólafur B. Thoroddsen skólastjóri 1997 til 2014 og Ólöf Inga Andrésdóttir, núverandi skólastjóri. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Á vef Akureyrarbæjar segir að veturinn 1985-86 hafi einungis verið ein kennsluálma við skólann, A-álma, en haustið 1986 bættist syðri hluti B-álmu við. Um miðjan vetur 1987-88 var norður hluti B-álmu (stjórnunarálman) tilbúin og veturinn eftir var lokið við norðurhluta kjallarans. Smíðastofa var ekki í skólanum fyrr en haustið 1989 en fram að þeim tíma var yngri nemendum ekið í smíðatíma niður í Oddeyrarskóla en þeir eldri fengu inni í Glerárskóla.

Gleðin var við völd í Síðuskóla og myndin af þessum glaðlega, fallega dreng því táknræn fyrir andrúmsloftið.

Um Síðuskóla af vef skólans

Myndasyrpur úr afmælinu af vef skólans

Kótilettur

Sigmundur Ernir Rúnarsson skrifar
04. nóvember 2024 | kl. 11:30

Beggja skauta byr

Jóhann Árelíuz skrifar
03. nóvember 2024 | kl. 11:11

Nenni ekki þessu kennaravæli

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
01. nóvember 2024 | kl. 14:00

Kenndi fyrir framan annan kennara

Orri Páll Ormarsson skrifar
01. nóvember 2024 | kl. 12:30

Gífurrunnar

Sigurður Arnarson skrifar
31. október 2024 | kl. 09:00

Lýðræði á tímum gervigreindar

Magnús Smári Smárason skrifar
30. október 2024 | kl. 11:45