Fara í efni
Pistlar

Undurhrif tónlistarinnar

Þorrinn með sína köldu ásýnd kallar á einhverja andstæða mynd, blíða, fallega og vermandi. 

Þannig leið mér á þriðja degi í þorra eftir að hafa upplifað bóndadag með öllum þeim grófu sortum matar og auðvitað hákarli leystum upp í ögn af ákavíti. Þörfin fyrir blíðu og huggun jókst svo til muna þegar óblíðar krumlur þorra köstuðu frá okkur sigri við Króata á sjálfan bóndadaginn. Ég veit ekki hvað með ykkur, en huggun og minn hugarléttir kom í Hofi á sunnudaginn, á þriðja degi í þorra.

Stjórnandinn ungi, hinn frábæri ensk-finnski Ross Jamie Collins. Mynd: Sindri Swan

Strengjahljómsveit Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands fór á kostum í undurfallegri strengjatónlist eftir Tchaikovsky, Ólaf Arnalds og Samuel Barber. Þegar hinn frábæri, ungi, ensk-finnski stjórnandi, Ross Jamie Collins sló inn fyrsta hljóminn í Serenöðu Tchaikovskys, heyrði maður að liðsheildin var mjög góð og hljómurinn safaríkur. Í þriðja þættinum, Élégie, hreif djúpt að heyra undurfallegan einleik fiðlanna, þá sellósins og svo víólanna. Það er þannig að fallegur strokhljóðfærahljómur hefur fengið fegurð sína og dýpt á mörg hundruð ára fullkomnunarsmíði og efnisvals þessarar einstöku eðalættar.

Í þessu sambandi finnst mér einkar viðeigandi að vitna í mjög áhugaverðan formála tónlistarstjóra Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands, Þorvaldar Bjarna Þorvaldssonar, í efnisskrá þessara tónleika sem birt var á netinu, en þar segir: „Núansarnir, litirnir, dýnamíkin og leiðirnar til að fá hljóð úr viðarkassa með strengjum eru einfaldlega of flókin til að geta verið endursköpuð með vél. Þróun strengjasveitarinnar er líka löng og hefur hún verið miðpunkturinn í tónlist Vesturlanda í nokkur hundruð ár.“

Þessu til staðfestingar þá flutti strengjasveitin 2 undurfalleg lög eftir töfratónlistarmanninn Ólaf Arnalds. Hann hefur vakið heimsathygli fyrir tónlist sína og ekki síst frábæra rafhljóðfæraraddir sem líkjast m.a.hljóðfærum sinfóníuhljómsveita. Þarna valdi hann samt gömlu góðu strokhljóðfærin og það var vel. Í lokaverki tónleikanna, Adagio eftir Samuel Barber fóru fagurblóm að vaxa í hugskoti mínu og allar frostrósir Þorra og sárir tapverkir horfnir úr sálinni.

Ef einhver efast um undurhrif tónlistarinnar er ekkert að gera annað en að sækja tónleika og staðreyna þetta. Takk fyrir mig!

Jón Hlöðver Áskelsson er tónskáld

 

Upptaka með ávarpi töfratónlistarmannsins Ólafs Arnalds, eins og Jón Hlöðver kallar hann, var leikin áður en hljómsveitin lék tvö lög hans. Mynd: Sindri Swan

Saga gífurviða

Sigurður Arnarson skrifar
29. janúar 2025 | kl. 11:00

Útvíðar

Sigmundur Ernir Rúnarsson skrifar
27. janúar 2025 | kl. 11:30

Gosdrykkjan

Jóhann Árelíuz skrifar
26. janúar 2025 | kl. 11:00

Seldi upp án þessa að missa úr skref

Orri Páll Ormarsson skrifar
24. janúar 2025 | kl. 13:00

Fuglaskógar

Sigurður Arnarson skrifar
22. janúar 2025 | kl. 10:00

Davíð Stefánsson

Haraldur Þór Egilsson skrifar
21. janúar 2025 | kl. 13:30