Mottumarssokkar fyrir alla karla hjá Samherja

Krabbameinsfélag Íslands tileinkar körlum með krabbamein marsmánuð; Mottumars er árvekni- og fjáröflunarátak félagsins og í ár er sérstök áhersla lögð á tengingu lífsstíls og krabbameina. Samherji hefur um árabil styrkt átakið með því að kaupa sokka handa körlum sem starfa hjá félaginu og haldið var í þá hefð að þessu sinni. Fyrstu sokkarnir voru afhentir körlum í fiskvinnslunum á Dalvík og Akureyri.
„Krabbameinsfélagið vill í Mottumars vekja athygli á að bæði óheilbrigðar og heilbrigðar lífsvenjur verða til á löngum tíma. Skilaboðin eru einföld. Lífsstíll er ekkert til að grínast með, hann er þvert á móti dauðans alvara,“ segir á heimasíðu Krabbameinsfélagsins. Þar kemur fram að þriðja hvert krabbameinstilvik, hið minnsta, tengist lífsstíl.
Anna María Kristinsdóttir mannauðsstjóri Samherja segir að fyrirtækið sé stolt og þakklátt Krabbameinsfélaginu fyrir þetta árlega átak. „Við höfum í gegnum tíðina stutt Mottumars með mikilli ánægju. Krabbamein er sjúkdómur sem snertir marga og gerir vart við sig fyrr eða síðar hjá flest öllum fjölskyldum landsins. Þessu árvissa átaki er ætlað að vekja sem flesta til vitundar um alvarleika krabbameina, sokkarnir og aðrir þættir í Mottumars vekja okkur til umhugsunar um mikilvægi þess að huga að heilsunni og góðum lífstíl, þannig að ég vona að karlarnir klæðist þessum sokkum sem oftast.“