Mikið undir bæði hjá KA-mönnum og Þórsurum
Tveir mjög mikilvægir íþróttaleikir eru á dagskrá á Akureyri í kvöld og sá þriðji, þar sem Akureyrarlið verður í eldlínunni og einnig er mikið í húfi, fer fram í Grafarvogi í Reykjavík.
- 18.30 KA - Grótta, Olís deild karla í handbolta
- KA - Grótta
- KA - Víkingur
- Afturelding - KA
- KA - Valur
- 19.15 Þór - Þróttur úr Vogum, 1. deild karla í körfubolta
Lokasprettur deildarkeppninnar er einnig framundan í 1. deildinni í körfubolta. Efsta liðið fer beint upp í Subway deildin en liðin í 2. - 9. sæti fara í úrslitakeppni um annað laust sæti í efstu deild. Þórsarar eru ekki öruggir um sæti í úrslitakeppninni en eiga góða möguleika á að komast þangað.
Þór á fjóra leiki eftir í deildinni:
- Þór - Þróttur V
- Þór - Ármann
- Sindri - Þór
- Þór - Skallagrímur
Þórsarar eru í áttunda sæti, hafa unnið sjö leiki af 18, Selfoss er næst fyrir neðan með 12 stig eftir 19 leiki og þar fyrir neðan er Ármann með 10 stig eftir 17 leiki. Akurnesingar eru í næsta sæti fyrir ofan Þór með tveimur stigum meira, einnig eftir 18 leiki.
- 19.30 Fjölnir - Þór, Grill 66 deildin í handbolta
Þórsarar eru í baráttu fjögurra liða um eitt laust sæti í efstu deild Íslandsmótsins í handbolta næsta vetur. ÍR er efst liðanna fjögurra með 20 stig, Fjölnir hefur 19, Þór 18 og Hörður 16. ÍR og Hörður eiga fjóra leiki eftir, en Þór og Fjölnir þrjá.
Þórsarar eiga þrjá leiki eftir í deildinni:
- Fjölnir - Þór
- Þór - Fram U
- Þór - Víkingur U
Efsta liðið af þessum fjórum fer beint upp í Olísdeildina. Það næst efsta fer í úrslitaviðureign um hitt lausa sætið í efstu deild; mætir annað hvort liðinu í þriðja eða fjórða sæti. Þau tvö spila um réttinn til að keppa við liðið sem endar í öðru sæti.