Íþróttir
KA-mönnum spáð 7. sæti Bestu deildarinnar
02.04.2024 kl. 17:30
Daníel Hafsteinsson verður áfram í lykilhlutverki í KA-liðinu í sumar. Hér er hann í leik gegn HK á Greifavellinum í fyrrasumar, en HK-ingar eru fyrstu mótherjar KA-manna í deildinni í ár. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson
KA-mönnum er spáð 7. sæti í Bestu deildinni í knattspyrnu í sumar í árlegum samkvæmisleik fyrirliða, þjálfara og formanna liðanna 12 í deildinni. Spá þessa hóps var opinberuð á kynningarfundi deildarinnar í dag.
Valsmönnum er spáð Íslandsmeistaratitlinum og meisturum Víkings öðru sæti. Vestra og HK er spáð falli.
Spáin er sem hér segir:
- Valur
- Víkingur R.
- Breiðablik
- Stjarnan
- KR
- FH
- KA
- Fram
- ÍA
- Fylkir
- Vestri
- HK
Flautað verður til leiks í Bestu deildinni á laugardaginn. Leikir í fyrstu umferðinni eru þessir:
- Laugardag 19.15, Víkingur - Stjarnan
- Sunnudag 13.00, Fram - Vestri
- Sunnudag 17.00, KA - HK
- Sunnudag 19.15, Valur - ÍA
- Sunnudag 19.15, Fylkir - KR
- Mánudag 19.15, Breiðablik - FH
Þrír fyrstu leikir KA í deildinni verða á heimavelli og fjórir af fyrstu fimm.
- 2. umferð
KA - FH laugardag 13. apríl kl. 16.15 - 3. umferð
KA - Vestri sunnudag 21. apríl kl. 14.00 - 4. umferð
Víkingur - KA sunnudag 28. apríl kl. 16.15 - 5. umferð
KA - KR sunnudag 5. maí kl. 16.00
Miðjumaðurinn Rodri, einn burðarása KA-liðsins, í leik gegn HK á heimavelli í fyrra. Jakob Snær Árnason í fjarska. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson