Fara í efni
Mannlíf

Flugið heillar marga sem fyrr – MYNDIR

Myndir: Þorgeir Baldursson

Árlegur Flugdagur Flugsafns Íslands á Akureyri fór fram í gær í blíðskaparveðri og mikill fjöldi fólks lagði leið sína á flugvöllinn sem endranær.

Hátt í 30 flugvélar voru þar til sýnis og á annan tug tók þátt í flugsýningunni. TF-EIR, þyrla Landhelgisgæslunnar, var á staðnum, kempur á nokkrum listflugvélum sýndu listir sínar eins og venjulega, en fréttnæmast þegar fram í sækir mun væntanlega þykja að raf­magns­flug­vél tók á loft í fyrsta skipti á Akureyri.

Þorgeir Baldursson fylgdist gaumgæfilega með á Akureyrarflugvelli og býður hér til myndaveislu.