Ingvi Rafn Jóhannsson – lífshlaupið
Ingvi Rafn Jóhannsson, rafvirkjameistari og söngvari, fæddist á Akureyri 1. janúar 1930. Hann lést 13. mars 2024.
Foreldrar hans voru hjónin Jóhann Ó. Haraldsson, tónskáld og endurskoðandi KEA, og Þorbjörg Stefánsdóttir, sem lést úr berklum þegar Ingvi var tæplega tveggja ára. Seinni kona Jóhanns og stjúpmóðir Ingva Rafns var María Kristjánsdóttir.
Eiginkona Ingva Rafns var Sólveig Jónsdóttir frá Aðalvík, f. 1932, d. 2002. Börn þeirra eru átta:
1) Þorbjörg, f. 1953. Maki: Ólafur Tr. Kjartansson. Börn: Kjartan, f. 1974, Ólafur Tryggvi, f. 1975, og Sólveig María, f. 1984. Barnabörn: Sólrún Svava, f. 2000, Sunneva, f. 2002, Helga Björg, f. 2006, Ágúst Óli, f. 2003, Kári Gunnar, f. 2007, Ólafur Darri, f. 2014, Óli Gunnar, f. 2012, Jakob Þór, f. 2015, og Rut f. 2021.
2) Sólveig Sigurrós, f. 1954. Barn: Smári Rafn Teitsson, f. 1974. Barnabarn: Teitur Örn, f. 2022.
3) Svanfríður, f. 1955. Maki: Pétur Einarsson, d. 2020. Börn: Stefanía Tinna, f. 1985, og Sindri, f. 1990. Barnabörn: Baltasar Ezra, f. 2014, Audrey Evia Elinora, f. 2017, og Aría, f. 2022.
4) María Björk, f. 1959. Maki: Ómar Bragi Stefánsson. Börn: Stefán Arnar, f. 1982, Ingvi Hrannar, f. 1986, og Ásthildur, f. 2000. Barnabörn: Stefán Eiríkur, f. 2013, Ómar Trausti, f. 2015, Matthildur María, f. 2019, og Gunnar Steinn, f. 2021.
5) Katrín Elfa, f. 1961. Barn: Jóhanna Tania Haraldsdóttir, f. 1985. Barnabörn: Mia, f. 2012, Johan, f. 2016, Filip, f. 2018, og Henrik, f. 2023.
6) Eyrún Svava, f. 1964. Maki: Hólmar Svansson. Börn: Darri Rafn, f. 1991, Hildur María, f. 1994, og Agnes Erla, f. 1996. Barnabarn: Sóley Birta, f. 2021.
7) Jóhann Ólafur, f. 1966. Maki: Gunnhildur Arnarsdóttir. Börn: Katrín Ásta, f. 1995, Eyþór Trausti, f. 1997. Barnabarn: Matthías Páll, f. 2023.
8) Ingvi Rafn, f. 1970. Maki: Ruth Viðarsdóttir. Barn: Páll Veigar, f. 2001.
Ingvi Rafn ólst upp á Akureyri til sex ára aldurs en fluttist þá til fósturforeldra sinna að Ási á Þelamörk og síðar Skógum. Þegar Ingvi hóf nám í Iðnskólanum á Akureyri 1947 flutti hann til föður síns og stjúpmóður. Hann lauk prófi frá Iðnskólanum á Akureyri 1951, sveinsprófi í rafvirkjun 1953 og fékk meistarabréf 1957. Hann hóf sjálfstæðan rekstur með öðrum 1954 en frá 1961 til 1994 rak hann eigið fyrirtæki, Raftækni. Hann var formaður Rafvirkjafélags Akureyrar 1953-1957, formaður Rafvirkjameistarafélags Akureyrar og síðar Félags rafverktaka á Norðurlandi í 13 ár. Sat í stjórn LÍR í níu ár og var einnig formaður Norðlenskra rafverktaka hf., lengst af frá stofnun þess 1982. Ingvi Rafn starfaði í kórum á Akureyri óslitið frá árinu 1951 til 2017, fyrst í Kantötukór Akureyrar, síðan í Karlakór Akureyrar í 17 ár. Frá 1973 starfaði hann í Karlakórnum Geysi. Við sameiningu kóranna árið 1990 varð hann fyrsti formaður. Hann söng síðan með Kór aldraðra, til ársins 2017.
Ingvi Rafn lætur eftir sig 47 afkomendur, átta börn, 16 barnabörn og langafabörnin eru 23.
Hann verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju í dag, 2. apríl 2024, kl. 13. Jarðsett verður í Möðruvallakirkjugarði.