Listnámsnemar í VMA sýna afrakstur ársins

Nemendur á listnámsbraut í VMA bjóða til opnunar á tveimur listasýningum á laugardaginn kemur, 3. maí. Annars vegar er hópur sem hefur stundað nám í kvöldskólanum, en hins vegar útskriftarnemar brautarinnar. Kvöldskólinn sýnir í Deiglunni þar sem opnunin á sýningunni Ólíkar leiðir verður kl 14. Útskriftarnemarnir opna sína sýningu, Bland í Hofi, kl 15 í menningarhúsinu.
Yfirleitt hafa útskriftarnemar af listnámsbraut í VMA sýnt í Listasafninu, en vegna framkvæmda í Ketilhúsinu sýna þau í Hofi í ár. Til sýnis verða lokaverkefni nemenda.
Kvöldskóli VMA á listnámsbraut er nýr af nálinni, en fyrstu nemendurnir hófu nám síðasta haust. Þau sýna afrakstur ársins í Deiglunni kl 14 á laugardaginn, en sýningin þeirra ber heitið 'Ólíkar leiðir'. Hér má lesa frétt Akureyri.net um þetta nýja nám og fyrirkomulag þess.
Auglýsing nemenda í kvöldskólanum. Sýning þeirra verður opin um helgina, laugardag og sunnudag á milli 14-17 í Deiglunni.
Auglýsing fyrir sýningu útskriftarnemenda á listnámsbraut í VMA. Sýningin verður opnuð í Hofi á laugardaginn kl. 15.