KA-menn og Þórsarar á útivöllum í dag
Karlalið KA í knattspyrnu og handknattleik og karlalið Þórs í körfuknattleik verða í eldlínunni á útivöllum í dag. Knattspyrnulið KA mætir Fram í Úlfarsárdal í Reykjavík, handboltamenn félagsins fara til Eyja og Þórsarar leika í Garðabæ.
- Besta deild karla í knattspyrnu - neðri hluti
Lambhagavöllurinn kl. 14
Fram - KA
Síðasta umferðin fer fram í dag. KA er í efsta sæti í neðri hluta Bestu deildarinnar með 34 stig og nægir jafntefli við Fram til að halda efsta sætinu. KR er með 31 stig og kemst mest í 34.
Baráttan er hatrömm á botninum. Fylkir er fallinn en Vestri og HK eru bæði með 25 stig og því skýrist ekki fyrr en í dag hvort liðið fellur úr deildinni. Vestri er óneitanlega í mun betri stöðu því Ísfirðingar fá Fylki í heimsókn og þeir eru auk þess með betri markatölu en HK-ingar sem mæta KR-ingum. Allir leikirnir hefjast kl. 14.
- 1. deild karla í körfuknattleik
Umhyggjuhöllin í Garðabæ kl. 14
KFG - Þór
Þórsurum hefur gengið brösuglega í upphafi leiktíðar. Liðið hefur leikið þrjá leiki í deildinni og tapað öllum, auk bikarleiks gegn liði Álftaness sem einnig tapaðist. Álftanes leikur í efstu deild Íslandsmótsins sem nú kallast Bónusdeild. Þórsarar bíða því enn eftir fyrsta sigri karlaliðsins á þessari leiktíð. Fyrsti sigurinn gæti komið í dag, en KFG er einnig án sigurs eftir þrjá leiki.
- Olísdeild karla í handknattleik
Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja kl. 15
ÍBV - KA
KA hefur spilað sjö leiki og unnið tvo. Eftir tap í fyrstu fjórum leikjunum kom fyrsti sigurinn gegn ÍR á heimavelli í 5. umferðinni og svo annar heimasigur gegn HK í síðustu umferð. ÍBV er um miðja deild, hefur unnið þrjá leiki, gert eitt jafntefli og tapað þremur og situr í 7. sætinu, en eftir sigur HK gegn ÍR á fimmtudagskvöldið færðist KA niður í botnsæti deildarinnar. HK og ÍR eru stigi fyrir ofan KA.