Fara í efni
Menning

Hús Menntaskólans á Akureyri 1931

Mynd: Vigfús Sigurgeirsson 1931/Minjasafnið á Akureyri

GAMLI SKÓLI – 3

  • Í þessum mánuði eru 120 ár síðan hið gamla, glæsilega skólahús Menntaskólans á Akureyri var tekið í notkun. Akureyri.net birtir af því tilefni einn kafla á dag út mánuðinn úr bókinni Lifandi húsið - saga gamla skólahúss Menntaskólans á Akureyri.

Mynd þessi er tekin sumarið 1931 vestur yfir þáverandi hús skólans Gamla skóla og Leikfimishúsið. Skólahúsið skín í hádegissólinni og hafði verið málað sumarið 1926 og gerðar stéttar austan við það og við báða innganga þess og gangstígur með tvennum tröppum niður á Eyrarlandsveg. Trjágarður skólans, sem byrjað var að planta í sumarið 1909, er tekinn að vaxa upp. Lystigarður Akureyrar er farinn að fá á sig svip með hringlaga stígum umhverfis gosbrunn í miðjum garði sem vakti mikla athygli gesta og gangandi. Neðst til vinstri er stytta á grjótstöpli af séra Matthíasi og neðst til hægri er Fagrastræti 1. Efst í hægra horni myndarinnar er smábýlið Sólheimar.

  • Þetta er kaflinn Hús skólans 1931 úr bókinni Lifandi húsið - saga gamla skólahúss Menntaskólans á Akureyri sem Völuspá gaf út árið 2013. Höfundur bókarinnar er Tryggvi Gíslason, skólameistari frá 1972 til 2003.