Fara í efni
Mannlíf

Vitja skjólstæðinga sinna í heimahúsum

Fyrirtækið Heilsuvernd hefur ákveðið bjóða upp á þá þjónustu að heimilislæknar fyrirtækisins á Akureyri, Valur Helgi Kristinsson og Guðrún Dóra Clarke, vitji skjólstæðina sinna í heimahúsum. Í tilkynningu frá Heilsuvernd kemur fram að fyrirtækið fái vitjanabíl læknis afhentan í næsta mánuði.

Sjúkratryggingar meinuðu Heilsuvernd fyrr á þessu ári að Valur Helgi og Guðrún Dóra störfuðu á Akureyri á vegum heilsugæslunnar í Urðarhvarfi í Kópavogi, þangað sem þau réðu sig. Þau mættu eingöngu hafa aðsetur á síðarnefnda staðnum.  Heilsuvernd segir nú að heilsugæslunni sé heimilt að vitja skjólstæðings á heimili hans og því hafi verið ákveðið að bjóða upp á slíka þjónustu á dagvinnutíma á Akureyri.

„Heilsugæslan Urðarhvarfi hefur unnið markvisst að því að geta veitt þjónustu heimilislækna á Akureyri. Valur Helgi Kristinsson og Guðrún Dóra Clarke hafa verið staðsett í Urðarhvarfi og sinnt þar móttöku við góðan orðstír, auk þess hafa þau sinnt skjólstæðingum okkar á Akureyri með rafrænum hætti og í gegnum síma,“ segir í tilkynningu frá Heilsuvernd.

Tæplega 1000 skjólstæðingar

Í tilkynningunni segir einnig:

„Sjúkratryggingar meinuðu okkur að nýta aðstöðu á Læknastofum Akureyrar til þess að hitta skjólstæðinga sem í dag telja tæplega 1000. Undirskriftarlisti var stofnaður https://island.is/.../fe929a33-5cae-4609-a6b1-d52895e6d861 sem telur nú ríflega 800 rafrænar undirskriftir og má því gera ráð fyrir því að hátt í 3-4000 einstaklingar séu tilbúnir að fylgja sínum læknum.

Við gerum því ráð fyrir að fleiri muni skrá sig á heilsugæsluna á næstunni. Heilsugæslunni er heimilt að vitja skjólstæðinga á sínu heimili og höfum við því ákveðið að opna fyrir slíka þjónustu á dagvinnutíma á Akureyri með vitjanabíl læknis sem við fáum afhentan í ágúst.“

Forráðamenn Heilsuverndar segjast ítrekað hafa bent á að skráning á heilsugæslu sé frjáls og heilsugæslum sé almennt ekki heimilt að meina skjólstæðingum um skráningu né afskrá þá. „Þess vegna munum við áfram leita leiða til að sinna okkar skjólstæðingum og stefnum ótrauð að því að það verði einnig mögulegt á stofu á Akureyri innan tíðar.“