Mannlíf
Val á íþróttafólki Þórs tilkynnt í Hamri í dag
06.01.2025 kl. 11:00
Íþróttafólk ársins 2023, mynd frá hátíðinni í fyrra. F.v. Nói Björnsson, formaður Þórs, Maddie Sutton og Sandra María Jessen, íþróttakonur Þórs 2023, og Elmar Freyr Aðalheiðarson, íþróttakarl Þórs 2023. Mynd: Páll Jóhannesson.
Þórsarar tilkynna val á íþróttafólki félagsins 2024 á árlegum viðburði í Hamri í dag kl. 17.00. Á heimasíðu félagsins segir að hátíðin verði með hefðbundnum hætti, en það er framkvæmdastjórinn Reimar Helgason sem setur samkomuna. Íslandsmeistarar félagsins og landsliðsfólk verður heiðrað, látinna félaga minnst og boðið upp á tónlistaratriði.
Á hverju ári tilnefnir hver deild íþróttakonu- og karl til valsins á íþróttafólki ársins. Í ár eru eftirtalin tilnefnd:
Íþróttakarl Þórs 2024
- Alfreð Leó Svansson - Rafíþróttir
- Brynjar Hólm Grétarsson - Handknattleikur
- Igor Biernat - Hnefaleikar
- Matthías Örn Friðriksson - Pílukast
- Rafael Alexandre Romao Victor - Knattspyrna
- Reynir Bjarkan Barðdal Róbertsson - Körfuknattleikur
Íþróttakona Þórs 2024
- Árveig Lilja Bjarnadóttir - Rafíþróttir
- Eva Wium Elíasdóttir - Körfuknattleikur
- Lydía Gunnþórsdóttir - Handknattleikur
- Sandra María Jessen - Knattspyrna
- Sunna Valdimarsdóttir - Pílukast
Aðalstjórn Íþróttafélagsins Þórs býður félagsfólki, velunnurum, starfsfólki og iðkendum að mæta. Vöfflukaffi verður í boði.