Tvö mörk Ásgeirs og KA fékk öll stigin
KA-menn gerðu góða ferð í Kórinn í Kópavogi í dag þar sem þeir sigruðu öflugt lið HK 2:1 í 6. umferð Bestu deildar Íslandsmótsins í knattspyrnu. Heimamenn gerðu eina mark fyrri hálfleiks en Ásgeir Sigurgeirsson, sem var skipt inná í upphafi seinni hálfleiks, gerði bæði mörk KA.
HK-ingar voru betri í fyrri hálfleiknum, vörðust mjög vel og beittu hættulegum skyndisóknum eins og þeir eru þekktir fyrir. KA-menn ollu vonbrigðum, virtust ekki nógu vel stemmdir og komust ekkert áleiðis gegn duglegum heimamönnum.
Það var Marciano Aziz sem skoraði fyrir HK á 22. mínútu. Hann fékk boltann framarlega vinstra megin á vellinum, lék í átt að vítateignum lét vaða að marki; boltinn fór í Dusan Brkovic varnarmann KA, breytti aðeins um stefnu og sveif efst í hornið fjær. Glæsilegt mark.
Góður seinni hálfleikur
Hallgrímur Jónasson þjálfari KA hélt augljóslega vel heppnaða ræðu yfir sínum mönnum í hálfleikshléinu. Allt annað var að sjá þá þegar leikurinn hófst á ný. Hallgrímur tók m.a. þá snjöllu ákvörðun að skipta Ásgeiri Sigurgeirssyni inná í stað Pæturs Petersen, fyrirliðinn er alltaf mjög viljugur, gefur aldrei þumlung eftir og kraftur hans smitaði út frá sér.
Fyrra markið gerði Ásgeir á 61. mín. Skoraði auðveldlega eftir góðan undirbúning Hallgríms Mar Steingrímssonar, sem vann boltann af varnarmanni framarlega, vinstra megin á vellinum, lék upp undir endamörk og sendi inn á markteiginn. Þar var Ásgeir aleinn og óvaldaður, ótrúlegt en satt, og skoraði auðveldlega.
Ásgeir hafði heldur betur meira fyrir sigurmarkinu; hann vann boltann af HK-ingi rétt fyrir aftan miðjan vallarhelming KA, tók á rás og lék framhjá hverjum andstæðingnum af öðrum. Ásgeir komst alla leið inn á vítateig þar sem þrír varnarmenn höfðu ekki erindi sem erfiði og framherjinn kórónaði frábæran sprett með því að skora með hnitmiðuðu skoti vinstra megin úr teignum í fjærhornið. Frábærlega gert hjá fyrirliða KA.
Bara ein leið að enda svona sprett!
Ásgeir var beðinn um að lýsa markinu í viðtali við mbl.is. „Ef ég man þetta rétt áttu þeir innkast sem ég næ að lesa og kemst inní. Ég næ að hlaupa upp völlinn, þeir reyndu að brjóta á mér en náðu því ekki svo ég næ að koma mér alveg vinstra megin við markið og setja boltann hægra megin við markmanninn,“ sagði Ásgeir.
Hann sagði það hafa verið hugsunin allan tímann eftir að hann vann boltann að hann væri að fara að skora. „Já alltaf! Maður leggur ekkert af stað upp völlinn án þess að ætla að skora og þegar maður nær svona spretti er bara ein leið til að enda hann.“ Nánar hér
Með sigrinum fór KA upp fyrir HK á stöðutöflunni. Eftir þrjá sigra, tvö jafntefli og eitt tap er KA með 11 stig og í þriðja sæti deildarinnar sem stendur.
Smellið hér til að sjá leikskýrsluna