Fara í efni
Íþróttir

Pólarhestar fyrirtæki ársins á Norðurlandi

Pólarhestar var valið fyrirtæki árins á uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar á Norðurlandi. Fyrirtækið er til húsa á Grýtubakka í Grýtubakkahreppi og býður upp á hestaferðir allan ársins hring. Mynd: Facebooksíða Pólarhesta

Uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar á Norðurlandi var haldin um síðustu helgi en um árlegan viðburð er að ræða sem haldinn er af Markaðsstofu Norðurlands. Að vanda voru veittar viðurkenningar til ferðaþjónustuaðila sem þóttu standa upp úr auk þess sem farið var í heimsókn til ýmissa ferðaþjónustuaðila í Eyjafjarðarsveit, Svalbarðsstrandarhreppi og Grýtubakkahreppi.

Í ár voru þrjár viðurkenningar veittar; Fyrirtæki ársins, Viðurkenning fyrir störf í þágu ferðaþjónustu og Hvatningarverðlaun ársins.

Með hestaferðir í 40 ár

Viðurkenningin Fyrirtæki ársins er veitt fyrirtæki sem er búið að slíta barnsskónum og hefur skapað sér sterka stöðu á markaði. Fyrirtækið hefur unnið að stöðugri uppbyggingu, vöruþróun og nýsköpun og er með höfuðstöðvar á Norðurlandi. Viðurkenninguna í ár hlaut fyrirtækið Pólarhestar í Grýtubakkahreppi.  Fyrirtækið fagnar 40 ára afmæli á næsta ári en um er að ræða lítið fjölskyldufyrirtæki sem var stofnað 1985 af  Stefáni Kristjánssyni. Í umsögn frá Markaðsstofu Norðurlands um fyrirtækið  segir: Fyrirtækið býður upp á hestaferðir allan ársins hring og leggur áherslu á persónuleg samskipti og góða tengingu við sína gesti til að tryggja að þeirra upplifun verði sem allra best. Þessi atriði skipta höfuðmáli þegar kemur að þróun áfangastaðarins Norðurlands og eiga sinn þátt í því að stuðla að minni árstíðarsveiflu, þegar boðið er upp á afþreyingu sem innlendar og erlendar ferðaskrifstofur geta boðið upp á í sínum vetrarferðum. Stefán og Júlíana, eigendur fyrirtækisins, hafa átt í góðu samstarfi við önnur fyrirtæki í ferðaþjónustu, kynnt áfangastaðinn Norðurland og verið duglegt við að benda ferðalöngum á það sem ekki má missa af í nágrenni þess. Slík vinnubrögð eru öllum til hagsbóta og til fyrirmyndar.

Á uppskeruhátíðinni um síðustu helgi. Frá vinstri: Katrín Harðardóttir frá Markaðsstofu Norðurlands, Rúnar Óskarsson frá Fjallasýn, Juliane Birgitte Kauertz frá Pólarhestum, Stefán Kristjánsson frá Pólarhestum, Evelyn Ýr Kuhne fyrir hönd Kakalaskála, Arnheiður Jóhannsdóttir frá Markaðsstofu Norðurlands og Halldór Óli Kjartansson frá Markaðsstofu Norðurlands 

Talsmaður vetrarferðaþjónustu á Norðurlandi

Viðurkenninguna fyrir störf í þágu ferðaþjónustu á Norðurlandi fær einstaklingur sem hefur haft góð áhrif á ferðaþjónustu á Norðurlandi í heild sinni og hefur starfað beint eða óbeint fyrir ferðaþjónustu á svæðinu. Í ár var það Rúnar Óskarsson, eigandi Fjallasýnar sem hlaut viðurkenninguna. Fyrirtæki Rúnars hefur verið starfandi í meira en fjörutíu ár og hefur alla tíð lagt áherslu á ferðalög um Norðurland, þá sérstaklega Norðurhjarasvæðið og Demantshringinn. Höfuðstöðvar þess eru í Reykjahverfi en býður þjónustu sína um allt land sé þess óskað.  Í umsögn segir m.a: Rúnar hefur verið mikill talsmaður þess að vetrarferðaþjónusta á Norðurlandi verði efld, til að renna styrkari stoðum undir bæði hans fyrirtæki og önnur í ferðaþjónustu eða henni tengdri. Norðlensk ferðaþjónusta hefur þannig notið þessa krafts sem hefur fylgt Rúnari og fjölskyldu hans sem starfar hjá fyrirtækinu, eiginkonu hans Huldu Jónu og syni þeirra Andra.

Sýning um sögu Sturlungaaldar

Hvatningarverðlaunin hlaut Kakalaskáli í Skagafirði. Í umsögn segir m.a:  Kringlumýri í Skagafirði, örskammt frá þjóðvegi 1, hefur átt sér stað fjölbreytt uppbygging frá árinu 2008 þar sem nú er hægt að sjá sýningar um sögu Sturlungaaldar og hinn mannskæða Haugsnesbardaga sem var háður í apríl 1246. Boðið eru upp á hljóðleiðsögn á fimm tungumálum og er þar að finna listaverk eftir listafólk frá 10 löndum.  Eigendurnir Sigurður Hansen og María Guðmundsdóttir hafa lagt mikinn metnað í sýningarnar og þjónustu við gesti sem koma til þeirra. Kakalaskáli hefur þannig unnið sér inn sess sem áhugaverður valmöguleiki í afþreyingu á svæðinu. Auk þess hafa þau hjónin verið öflug í samstarfi um menningartengda ferðaþjónustu í sínu nærumhverfi og lagt sín lóð á vogarskálarnar til að bæta hana svo um munar.