Ósáttur við að Nökkvi fari en samgleðst honum
Arnar Grétarsson, þjálfari KA, er ánægður en jafnframt ósáttur við að framherjinn Nökkvi Þeyr Þórisson sé á förum frá félaginu.
„Ég er mjög ánægður fyrir hönd Nökkva og samgleðst honum innilega,“ sagði Arnar við mbl.is í dag í kjölfar þess að KA samþykkti kauptilboð belgíska B-deildarliðsins Beerschot í framherjann, markahæst leikmann Íslandsmótsins.
Arnar segir hins vegar að sjálfsögðu slæmt að missa Nökkva núna. „Ég er ekki sáttur að missa hann á þessum tímapunkti en þetta var ákvörðun sem var tekin af þeim sem stjórna og við þurfum að lifa með henni,“ sagði Arnar.
„Þetta er strákur sem hefði getað valið úr tilboðum eftir tímabilið en svona er fótboltinn bara,“ sagði Arnar jafnframt.
Erfið ákvörðun en þó ekki
Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, segir í viðtali við fotbolta.net að erfitt hafi verið að taka ákvörðun um að selja Nökkva núna, en þó í raun ekki.
„Við höfum sagt við alla þessa stráka sem hafa komið til okkar; Nökkvi, Sveinn, Þorri, Bjarni og Danni (leikmenn í kringum tvítugt) að við séum með það sem markmið að reyna hjálpa þessum strákum að komast út. Þegar það kemur tilboð sem er gott fyrir klúbbinn og mjög gott fyrir leikmanninn þá verðum við að þora að standa við það og standa við þau orð sem við höfum gefið leikmanninum þegar hann kom upphaflega,“ segir Sævar í viðtalinu. „Þó að þetta sé vond tímasetning fyrir okkur þá er þetta þannig tækifæri fyrir Nökkva að við viljum ekki standa í vegi fyrir honum. Það hefði verið óskandi að hafa hann út tímabilið en þegar svona samningur er kominn á borðið þá skilur maður leikmanninn.“