Naumt tap stelpnanna gegn liði Eyjamanna
KA/Þór tapaði naumlega fyrir ÍBV á heimavelli í dag í Olís deild kvenna í handbolta, efstu deild Íslandsmótsins. Gestirnir voru fjórum mörkum yfir í hálfleik og unnu með eins marks mun, 28:27.
Eyjamenn byrjuðu af mun meiri krafti, komust mest fimm mörkum yfir í fyrri hálfleik en að honum loknum var staðan 15:11.
Stelpurnar okkar komu hins vegar tvíefldar til seinni hálfleiksins, ekki voru liðnar nema níu mínútur þegar þær höfðu náð að jafna og fljótlega voru þær komnar yfir, 20:19. Leikurinn var hnífjafn eftir það, Sunna Jónsdóttir gerði 28. mark gestanna og KA/Þór átti síðustu sókn leiksins en tókst því miður ekki að skora og næla þar með í annað stigið.
KA/Þór er því enn í fimmta sæti deildarinnar með fjögur stig að loknum sjö leikjum. ÍBV er í þriðja sæti deildarinnar með 12 stig, tveimur á eftir Val og Stjörnunni.
Mörk KA/Þórs: Lydía Gunnþórsdóttir 8 (3 víti), Nathalia Soares Baliana 6, Aþena Einvarðsdóttir 4, Hildur Lilja Jónsdóttir 4, Júlía Björnsdóttir 3, Anna Þyrí Halldórsdóttir 1 og Svala Björk Svanþórsdóttir 1.
Varin skot: Matea Lonac 8 (af 30 – 22,2%)
Smellið hér til að sjá alla tölfræðina.