Íþróttir
Gull, silfur og brons á Íslandsmóti unglinga
04.06.2021 kl. 18:18
Aftari röð frá vinstri: Snæbjörn Blischke, Hannes Snævar Sigmundsson Þjálfari, Gylfi Rúnar Edduson, Birkir Bergsveinsson, Breki Mikael Adamsson, Elsa Bjarney Viktorsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Samir Ómar Jónsson, Kári Hrafn Víkingsson, Þórelfa Grein Gísladóttir, Katrín Karlinna Sigmundsdóttir, Margrét Sóley Matthíasdóttir.
Breki Mikael Adamsson varð Íslandsmeistari 18 ára og yngri í júdó um síðustu helgi, í flokki - 81 kg. Íslandsmeistaramót unglinga fór fram, júdódeild KA átti níu fulltrúa á mótinu, sex drengi og þrjár stúlkur, og komst allur hópurinn á verðlaunapall, að því er fram kemur á heimasíðu KA; Breki var sá eini sem fékk gull, en KA-menn fengu einnig sex silfur- og tvenn bronsverðlaun.
11-12 ára
- Kári Hrafn Víkingsson - silfur
- Margrét Sóley Matthíasdóttir - brons
13-14 ára
- Þórelfa Grein Gísladóttir - silfur
- Samir Ómar Jónsson - silfur
- Katrín Karlinna Sigmundsdóttir - brons
15-18 ára
- Breki Mikael Adamsson - gull
- Birkir Bergsveinsson - silfur
- Snæbjörn Blischke - silfur
19-20 ára
- Gylfi Rúnar Edduson - silfur