Eyþór og Andrea efst eftir fyrsta dag
Eyþór Hrafnar Ketilsson og Andrea Ýr Ásmundsdóttir eru með forystu í meistaraflokki á Akureyrarmótinu í golfi sem hófst í dag.
Andrea Ýr er strax komin með örugga forystu í meistaraflokki kvenna. Þrjár leika þar, Andrea Ýr er á tveimur höggum yfir pari eftir fyrsta daginn - lék á 73 höggum. Kara Líf Antonsdóttir og Kristín Lind Arnþórsdóttir léku báðar á 82 höggum í dag.
Spennan er mun meiri í meistaraflokki karla. Eyþór Hrafnar Ketilsson er efstur á 72 höggum eftir fyrstu 18 holurnar, einu höggi yfir pari vallarins og þeir Tumi Hrafn Kúld og Veigar Heiðarsson, sem er aðeins 15 ára, eru tveimur höggum á eftir. Akureyrarmeistarinn frá síðasta ári, Lárus Ingi Antonsson, lék á 75 höggum í dag.
Staðan er þessi í meistaraflokki karla:
- 72 Eyþór Hrafnar Ketilsson - 1 högg yfir pari
- 74 Tumi Hrafn Kúld - 3 yfir pari
- 74 Veigar heiðarsson - 3 yfir pari
- 75 Lárus Ingi Antonsson - 4 yfir pari
- 76 Magnús Ifinnsson - 5 yfir pari
- 79 Örvar Samúelsson - 8 yfir pari
- 79 Patrik Róbertsson - 8 yfir pari
- 81 Óskar Páll Valsson - 10 yfir pari
- 81 Mikael Máni Sigurðsson - 10 yfir pari
Andrea Ýr Ásmundsdóttir á 10. teig Jaðarsvallar í dag. Ljósmyndir: Skapti Hallgrímsson
Eyþór Hrafn Ketilsson og Veigar Heiðarsson, til hægri, voru saman í ráshópi í dag ásamt Lárusi Inga Antonssyni, sem er aftastur á myndinni. Fyrir framan hann er Guðríður Sveinsdóttir móðir Veigars.
Tumi Hrafn Kúld, sem er í öðru sæti ásamt Veigari Heiðarssyni, slær af teig í dag.