Bogfimifólk Akurs vann sex Íslandsmeistaratitla
Keppendur frá Íþróttafélaginu Akri náðu framúrskarandi góðum árangri á Íslandsmeistaramótinu í bogfimi í byrjun mánaðarins. Þegar upp var staðið voru sex gullverðlaun komin í hús ásamt nokkrum silfur- og bronsverðlaunum, samtals 13 verðlaun sem komu í hlut keppenda frá Akri.
Í pistli á Facebook-síðu Akurs nefna þjálfarar jákvæða þróun meðal iðkenda hjá félaginu eftir að það fékk inni í Kaldbaksgötu 4 þar sem bogfimifólk hefur komið sér upp aðstöðu og æft síðan í október í fyrra. „Það er óhætt að segja að aðstaðan sem opnuð var í Kaldbaksgötu 4 í haust sé búin að breyta miklu fyrir okkur, það sjáum við bæði í andlitum þeirra sem koma á æfingar en einnig í þátttöku á mótum og fjölda verðlauna sem við komum með heim af þessum mótum.“
Tveir Íslandsmeistaratitlar. Anna María Alfreðsdóttir vann föður sinn í úrslitaviðureign sameiginlega flokksins. Mynd: Archery.is.
- Anna María Alfreðsdóttir
Íslandsmeistari í keppni með trissuboga, kvennaflokki og sameiginegum flokki. - Alfreð Birgisson
Íslandsmeistari í keppni með trissuboga í karlaflokki og vann alþjóðlega hlutann, silfurverðlaun í sameiginlegum flokki. - Jonas Björk
Íslandsmeistari í keppni með langboga, karlaflokki og sameiginlegum flokki. - Georg Rúnar Elfarsson
Bronsverðlaun í keppni með sveigboga í karlaflokki. - Izaar Arnar Þorsteinsson
Silfurverðlaun í keppni með berboga í karlaflokki og brons í sameiginlegum flokki. - Rakel Arnþórsdóttir
Silfurverðlaun í keppni með berboga í kvennaflokki. - Liðakeppni (Anna María Alfreðsdóttir, Alfreð Birgisson, Benedikt Tryggvason)
Bronsverðlaun í keppni með trissuboga. - Liðakeppni (Georg Rúnar Elfarsson, Izaar Arnar Þorsteinsson og Katrín Sif Antonsdóttir)
Bronsverðlaun í keppni með sveigboga.
Akureyri.net hefur áður fjallað um bogfimifeðginin Önnu Maríu Alfreðsdóttur og Alfreð Birgisson, meðal annars í tengslum við bága aðstöðu félagsins áður en bogfimifólk fékk inni í Kaldbaksgötunni. Anna María og Alfreð mættust einmitt í úrslitaviðureigninni í sameiginlegum flokki (óháð kynjum) og þar hafði Anna María betur gegn föður sínum.
Alexandra Kolka Stelly Eydal vann tvenn gullverðlaun og ein silfurverðlaun á Íslandsmóti ungmenna um helgina. Mynd: Archery.is.
Auk Íslandsmeistaratitla í flokki fullorðinna fyrr í mánuðinum komu tveir slíkir í hlut Akurs á Íslandsmóti ungmenna um liðna helgi.
- Alexandra Kolka Stelly Eydal
Íslandsmeistari í keppni með sveigboga, vann með 1,5 millimetra mun í bráðabana eftir að úrslitaviðureignin endaði 5-5.
Silfurverðlaun í keppni með sveigboga í sameiginlegum flokki. - Alexandra Kolka Stelly Eydal og Emilía Eir Valgeirsdóttir
Íslandsmeistarar í félagsliðakeppni, settu auk þess Íslandsmet.