Íþróttir
Ásgeir verður frá keppni í nokkrar vikur
05.08.2022 kl. 10:50
Halldór Hermann Jónsson, sjúkraþjálfari KA, hugar að Ásgeiri Sigurgeirssyni eftir að hann meiddist í leiknum gegn KR fyrir norðan. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson
Framherjinn Ásgeir Sigurgeirsson, fyrirliði knattspyrnuliðs KA, sem fór meiddur af velli gegn KR á þriðjudaginn, verður frá keppni í nokkrar vikur. Hann fékk betri fréttir í gær en sumir þorðu að vona; bönd í hnénu höfðu ekki skaddast en flísast hafði upp úr brjóski.
Ásgeir fór í aðgerð á hnénu í gær og segist vonandi verða klár í slaginn snemma í september ef endurhæfing gengur vel. Bjartsýnni spá er sú að hann verði jafnvel leikfær í lok þessa mánaðar.
KA-menn eiga þessa leiki eftir í deildinni, áður en henni verður skipt í tvennt og sex efstu liðin leika einfalda umferð og sex neðstu liðin sömuleiðis:
- FH – KA 7. ágúst, næstkomandi sunnudag
- KA – ÍA 14. ágúst
- Stjarnan – KA 21. ágúst
- KA – Víkingur 28. ágúst
- Fram – KA 4. september
- KA – Breiðablik 11. september
- Valur – KA 17. september
Viðbótin, þar sem sex efstu liðin mætast einu sinni innbyrðis, hefst 2. október og lýkur 29. október.