Ævarr Freyr Birgisson er blakmaður ársins
Ævarr Freyr Birgisson og Sara Ósk Stefánsdóttir hafa verið valin blakkona og blakmaður ársins 2024. Greint er frá þessu á vef Blaksamands Íslands (BLÍ).
Ævarr Freyr er uppalinn í KA en hefur undanfarin ár verið á mála hjá liði Odense Volleyball í dönsku deildinni – VolleyLigaen. Yfirstandandi leiktíð er hans sjöunda í Óðinsvéum og hafa Ævarr og félagar orðið bæði Danmerkurmeistarar og bikarmeistarar síðustu tvö ár. Ævarr á að baki hátt í 200 leiki í deildinni sem gerir hann einn af reyndustu leikmönnum liðsins. Hann hefur leikið í stöðu kantsmassara síðustu tímabil en spreytir sig í stöðu frelsingja þetta tímabil, að því er segir á vef BLÍ. Liðið Odense Volleyball er í öðru sæti dönsku deildarinnar í augnablikinu.
Ævarr Freyr, sem hlýtur nú nafnbótina blakmaður ársins í fjórða skipti, hefur leikið 48 sinnum fyrir landslið Íslands. „Þó að Ævarr sé sjaldnast hávaxnasti leikmaðurinn á vellinum þá er það tæknileg frammistaða og taktískt innsæi sem gerir hann að lykilleikmanni íslenska landsliðsins,“ segir á vef Blaksambandsins. Þar segir að frammistaða hans í móttöku, leikfærni, svo og leiðtogahæfileikar á vellinum, hafi gert gæfumuninn síðustu ár þegar landsliðið hefur verið á mikilli uppleið. „Ævarr er mikil fyrirmynd liðsfélaga sinna, er skuldbundinn liðinu og viljugur í að miðla reynslu sinni áfram.“
Sara Ósk Stefánsdóttir er uppalin í HK en er að spila sitt þriðja tímabil með Holte í Kaupmannahöfn og fjórða tímabilið sitt í Danmörku. Nánar hér um hana.