Fara í efni
Fréttir

Súlur Vertical: 31 ætlar að hlaupa 100 km

Akureyringurinn Baldvin Ólafsson kemur hress og kátur í mark á síðasta ári. Hann varð þriðji í 43 km hlaupinu - Tröllinu. Áróra Björt dóttir Baldvins hljóp lokasprettinn - á að giska 43 metra - með föður sínum, honum til halds og trausts! Mynd: Skapti Hallgrímsson

Um helgina fer hlaupaveislan Súlur vertical fram á Akureyri. Um 520 manns á aldrinum 17-68 ára keppa í fjórum vegalengdum, Gyðjunni (100 km), Tröllinu (43 km), Súlum (28 km) og Fálkanum (19 km) þar sem hlaupið er um stórbrotna náttúru í kringum Akureyri, eins og það er orðað í tilkynningu. 

Í Gyðjuna, 100 km hlaupið, er 31 keppandi skráður. Sá hópur leggur af stað frá Goðafossi, en aðrir frá Kjarnaskógi. Öll hlaupin enda í miðbæ Akureyrar, en lengsta hlaupið er með 3.500 m hækkun þar sem m.a. er hlaupið á Súlur og Vaðlaheiði.

Krakkahlaup Súlur Vertical í Kjarnaskógi á síðasta ári. Mynd: Skapti Hallgrímsson 

Krakkahlaupið

Krakkahlaup Súlur vertical hefur sannarlega slegið í gegn, en fjölmargir tóku þátt í hlaupinu í fyrra og var mikil gleði og margt um manninn í Kjarnaskógi þá. Krakkahlaupið fer fram í dag, föstudag, og hefst klukkan 16.00. Frítt er í það hlaup í boði 66°Norður, Kjarnafæðis og Ölgerðarinnar. Í krakkahlaupinu fara 5 ára og yngri 400 m, 6-8 ára 800 m, 9-12 ára 1200 m og 11-12 ára 2 km.

Andrea Kolbeinsdóttir, sem sigraði í 28 km hlaupinu í fyrra, nálgast endamarkið. Hulda Elma Eysteinsdóttir, sem sigraði í 100 km hlaupinu og er lengst til hægra á myndinni, hvetur Andreu til dáða. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Stuð og stemning

„Það má gera ráð fyrir miklu stuði víða um bæ í tengslum við hlaupið og væntanlega miklum og kröftugum stuðningi áhorfenda,“ segir í tilkynningu frá aðstandendum hlaupsins. „Fyrir þau sem vilja styðja við hlauparana eru nokkrir staðir sem koma til greina, mesta stuðið verður væntanlega í miðbænum við endamarkið. Einnig má gera ráð fyrir fjöri á Súluplani og þá leið sem hlauparar fara frá Fallorkustíg, í gegnum háskólasvæðið, fram hjá háskólanum, upp að lögreglustöð og að lokum niður Brekkugötuna niður í miðbæ. Svo verður auðvitað hægt að fylgjast með á samfélagsmiðlum hlaupsins á Instagram og Facebook og á timataka.net með tímunum hlauparanna.“