Fréttir
Sólstöðuhátíð haldin í Grímsey í vikunni
16.06.2021 kl. 09:30
Grímsey. Ljósmynd: Gyða Henningsdóttir.
Grímseyingar halda hátíð í tilefni af sumarsólstöðum dagana 17. til 20. júní og bjóða gestum og gangandi að taka þátt í hátíðarhöldunum með sér. Dagskrá hátíðarinnar er birt á vef Akureyrarbæjar.
Fimmtudagur 17. júní
- 20.30 Tónleikar á veitingastaðnum Kríunni
Föstudagur 18. júní
- 15.00 Dorgveiðikeppni barna (börn undir 10 ára í fylgd með fullorðnum)
- 19.00 Tapaskvöld á Kríunni (borðapantanir í síma 8982058)
- 21.00 Kvöldsigling í kringum Grímsey
- 22.30 Ganga á heimskautsbaug
- 23.00 Tónleikar á baugnum
Laugardagur 19. júní
- 11.30 Fjölskylduratleikur við Kríuna (börn undir 10 ára í fylgd með fullorðnum)
- 14.00 Kakóserimonia við Bakkakarlinn
- 18.00 Sjávarréttakvöld Kvenfélagsins Baugs
- 20.00 Barnaball í Múla
- 21.00 Dansleikur í Múla
Sunnudagur 20. júní
- 12.00 Ganga með leiðsögn frá bryggju
- 20.00 Varðeldur og söngur á Borgartúni
Tekið er fram að viðburðir sem haldnir eru utandyra séu háðir veðri.
Afgreiðslutímar og þjónusta er sem hér segir:
- Verslunin er opin alla daga á milli klukkan 15.00 og 16.00.
- Veitingastaðurinn Krían: föstudag 12.00 til 23.00, laugardag 12.00 til 17.00, sunnudag 12.00 til 21.00
- Pylsuvagninn: Föstudag og laugardag 12.00 til 17.00, sunnudag 12.00 til 21.00
- Sundlaugin: Föstudag 18.00 til 19.30, laugardag 13.00 til 16.00, sunnudag 13.00 til 15.00
- Gallleríið: Opið á meðan ferjan stoppar
Frítt er á alla viðburði nema Tapaskvöldið á Kríunni, sjávarréttakvöld Kvenfélagsins og ballið.
Leiksvæði fyrir börnin alla daga.
Ferjan Sæfari siglir á milli Dalvíkur og Grímseyjar fimm daga vikunnar og Norlandair flýgur milli Akureyrar og Grímseyjar þriðjudaga, föstudaga og sunnudaga.
Nánar upplýsingar hér um Grímsey.