Fara í efni
Fréttir

Rífandi stemning í Hofi og Borgarhólsskóli vann

Húsvíkingarnir í Borgarhólsskóla sigri hrósandi eftir að hafa orðið hlutskarpastir í Fiðringi.

Borgarhólsskóli á Húsavík varð sigurvegari í Fiðringi á Norðurlandi sem fram fór í menningarhúsinu Hofi á Akureyri á miðvikudagskvöldið. Tveir Akureyrarskólar komu næstir; Oddeyrarskóli lenti í öðru sæti – í þriðja sinn! – og Glerárskóli varð í þriðja sæti.

Fiðringur er hæfileikakeppni fyrir nemendur í 8. til 10. bekk grunnskóla og „er dýrmætur vettvangur fyrir unglingana á Norðurlandi eystra til að láta rödd sína heyrast,“ eins og sagði í tilkynningu.

Rífandi stemning var í Hofi á miðvikudaginn þegar Fiðringur á Norðurlandi fór fram í þriðja sinn. Í ár tóku níu skólar þátt og „það var frábært að sjá ungmennin blómstra á sviðinu í leik, dansi, söng og hljóðfæraleik. Umfjöllunarefnin sem þau völdu sér voru ekkert léttmeti en þeim liggur greinilega margt og mikið á hjarta,“ segir í tilkynningu frá skipuleggjendum.

Lið Oddeyrarskóla sem varð í öðru sæti keppninnar þriðja árið í röð. 

Kynnarnir Egill Andrason og Helga Salvör Jónsdóttir héldu uppi góðu stuði milli atriða og virkjuðu áhorfendur í söng og spurningar og prumpukeppni!

„Krakkarnir kusu lagið Skína með Prettiboitjokko sem Fiðringslagið 2024 og hann ásamt Gústa B mætti á svæðið og tryllti lýðinn í dómarahléinu. Í dómnefnd sátu Marta Nordal fráfarandi leikhússtjóri, Ingunn Elísabet Hreinsdóttir dansari og kennari á sviðslistabraut MA og Guðmar Gísli Þrastarson fulltrúi ungmennaráðs Akureyrar. Ný verðlaun voru kynnt til sögunnar í ár fyrir góða, skemmtilega eða óvænta notkun á íslenskunni og hlaut Oddeyrarskóli þau í ár. Sérlegur dómari fyrir þessa nýju viðurkenningu var Eyrún Huld Haraldsdóttir íslenskukennari í MA.“

Helena Eydís Ingólfsdóttir varaformaður SSNE afhenti farandbikar Fiðrings en SSNE hefur tryggt fjármagn fyrir Fiðring næstu tvö árin.

Verkefnastjórar Fiðrings eru að sögn strax farnar að hlakka til Fiðrings 2025!

Lið Glerárskóla sem varð í þriðja sæti keppninnar.