Ráðstefna í Hofi um breyttar ferðavenjur
Evrópska samgönguvikan
Breyttar ferðavenjur er yfirskrift ráðstefnu sem haldin verður í Hofi í dag, í tilefni evrópsku samgönguvikunnar, sem Akureyri.net hefur fjallað töluvert um. Það eru Akureyrarbær og Vistorka sem standa fyrir viðburðinum.
Ráðstefnan hefst klukkan 14.00.
Flutt verða nokkur erindi um göngu- og hjólastíga á Akureyri, í Reykjavík, Danmörku og Hollandi. Auk þess verða sagðar tvær stuttar reynslusögur; Elín Björk Jónasdóttir, hópstjóri veðurþjónustu hjá Veðustofu Íslands, segir frá reynslu sinni af því að nota svokallað rafmagns Cargo-hjól og síðan mun Edward H. Huijbens prófessor við háskólann í Wageningen í Hollandi og fyrrum bæjarfulltrúi á Akureyri segja frá sinni reynslu af því að hjóla á Akureyri og í Hollandi.
DAGSKRÁIN:
- Stígar við þjóðvegina – Rúna Ásmundsdóttir og Margrét Silja Þorkelsdóttir
- Rafmagns Cargo-hjól – Elín Björk Jónasdóttir
- Stígar í Hollandi og Danmörku í samanburði við Ísland – Thijs Kreukels og Lilja G. Karlsdóttir
- Að hjóla í Hollandi og á Íslandi – Edward H. Huijbens
- Göngu- og hjólastígakerfi Akureyrar – Pétur Ingi Haraldsson og Rut Jónsdóttir
Ráðstefnunni verður streymt á netinu – hér.
Evrópsku samgönguvikunni lýkur formlega með bíllausa deginum á morgun, fimmtudaginn 22. september.