Fara í efni
Fréttir

Leggur til að ókeypis verði fyrstu 5 dagana

Sjálfvirkum myndavélum sem „lesa“ bílanúmer hefur verið komið upp á Akureyrarflugvelli. „ ... ógerningur fyrir kerfið að vita hvaða bílnúmer eru komin til að fara í nauðsynlega læknisheimsókn og hver ekki,“ segir Njáll Trausti. Mynd: Skapti Hallgrímsson
Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, hvetur til þess að samningi um bílastæðagjöld á flugvöllunum á Akureyri, Egilsstöðum og í Reykjavík, verði breytt áður en gjaldtaka hefst. Ráðherra hafi beint því til stjórnar Isavia að taka tillit til þeirra sem fari í dagsferð í læknisheimsókn en ógerningur verði að fylgjast með slíku.
 
Þingmaðurinn segir að lengi hafi þótt dýrt að fljúga innanlands og með fyrirhuguðum bílastæðagjöldum leggist enn frekari álögur á íbúa landsbyggðarinnar. Vandamálið sem líklega er verið að reyna að sporna við er það að bílum sé ekki lagt á flugvöllunum vikum eða mánuðum saman,“ segir Njáll Trausti í færslu á Facebook síðu sinni.
 
 
Bílastæðið við flugstöðina á Akureyri. Mynd: Skapti Hallgrímsson
Þingmaðurinn starfaði lengi sem flugumferðarstjóri á Akureyri og kveðst hafa upplifað að bílum sé lagt til vetrardvalar, sem gengur auðvitað ekki upp og eðlilegt væri að yrði rukkað fyrir því það er mikilvægt að bílastæðin nýtist sem allra best fyrir flugfarþega.
 
Í besta falli hjákátlegt
 
„Fjármálaráðherra hefur nú sagt að þessi gjaldtaka megi hefjast en beinir því til stjórnar [Isavia] að taka tillit til þeirra sem fara í dagsferð í læknisheimsókn. Þetta skilningsleysi á stöðunni er í besta falli hjákátlegt enda verður ógerningur fyrir kerfið að vita hvaða bílnúmer eru komin til að fara í nauðsynlega læknisheimsókn og hver ekki,“ segir þingmaðurinn. „Það er ekki skynsamlegt ef farþegar þurfa að skila inn upplýsingum, t.d. læknisvottorði, og fá svo endurgreidd bílastæðagjöldin.“
 
Fimm fyrstu dagarnir ókeypis
 
Njáll Trausti segist giska á að um 80-90% af bílastæðagjöldunum verði greidd af íbúum á Norður- og Austurlandi. „Ég hef ekki forsendur til að reikna hverju þetta mun skila Isavia Innanlands en mín ágiskun er á bilinu 40-70 milljónir á ári,“ segir hann. „Ef markmiðið er að sporna við þeim sem geyma bílana sína til lengri tíma væri mun skynsamlegri leið að hafa t.d. gjaldfrjáls bílastæði í 5-7 daga áður en mælirinn byrjar að telja. Ég hvet ráðherrana sem gera samninginn við Isavia innanlandsflugvelli til þess að breyta samningnum með þeim hætti að gjaldtakan hefjist ekki í það fyrsta fyrr en eftir fimm daga á bílastæðunum á Akureyrar-, Egilsstaðar- og Reykjavíkurflugvelli.“