Fréttir
Kirkjutröppurnar teknar í notkun í dag

Mynd af vef Akureyrarbæjar
Langþráð stund rennur upp í dag þegar nýju kirkjutröppurnar við Akureyrarkirkju verða teknar í notkun. Hátíðleg athöfn hefst neðan við tröppurnar klukkan 16.00 og að henni lokinni verður boðið í skrúðgöngu upp að Akureyrarkirkju, að því er segir á heimasíðu bæjarins.
Þegar verkið var upphaflega boðið út var miðað við verklok í október á síðasta ári en framkvæmdir töfðust af margvíslegum ástæðum eins og margoft hefur verið fjallað um.