Fréttir
Kirkjan í Grímsey ónýt eftir eldsvoða
22.09.2021 kl. 00:35
Grímseyjarkirkja í ljósum logum í kvöld. Myndin birtist á mbl.is
Eldur kom upp í Miðgarðakirkju í Grímsey í kvöld og er hún gjörónýt skv. upplýsingum frá slökkviliðinu á Akureyri. Fréttavefur Morgunblaðsins, mbl.is, greindi fyrst frá. Ekkert er vitað um eldsupptök. Kirkjan er úr timbri og slökkviliðið í Grímsey fékk ekki við neitt ráðið.
Miðgarður er nyrsti kirkjustaður á Íslandi. Kirkjan var byggð árið 1867 úr rekaviði, að því er segir á heimasíðu Akureyrarbæjar. „Kirkjan stóð þá nær Miðgarðabænum en var færð um lengd sína árið 1932 vegna eldhættu og um leið var byggður við hana kór og forkirkja með turni. Gagngerar endurbætur á kirkjunni fóru fram 1956 og hún var endurvígð.“
Kirkjan var friðuð 1. janúar 1990 samkvæmt aldursákvæði þjóðminjalaga.
Miðgarðakirkja alelda. Ljósmynd: Karen Nótt Halldórsdóttir.