Hollvinir komu færandi hendi á geðdeild SAk
Hollvinir Sjúkrahússins á Akureyri færðu á dögunum legudeild geðdeildar stofnunarinnar rausnarlegar gjafir í formi húsgagna og stórt sjónvarp að auki. Um er að ræða stóla og fjögur borð í tvö viðtalsherbergi, stofuborð í dagstofu, tvo hægindastóla – svokallaða lazy boy – í öryggisenda deildarinnar og sjónvarp fyrir öryggisstofuna.
„Undanfarið hafa umfangsmiklar breytingar verið gerðar á legudeildinni með það að markmiði að bæta aðstöðu bæði sjúklinga og starfsfólks. Með tilkomu húsgagnanna frá Hollvinum má segja að umbæturnar hafi náð enn lengra,“ segir í tilkynningu frá SAk
Jóhannes G. Bjarnason, formaður Hollvina, mátar annan hægindastólinn – Lazy boy – sem Hollvinir færðu geðdeildinni.
„Í verkefnið fengum við Húsgagnahöllina sem veitti veglegan afslátt af húsbúnaði ásamt því að Heimilistæki gáfu veglegan afslátt af sjónvarpi,“ segir í tilkynningu frá Hollvinum. „Eining Iðja, Félag verslunar og skrifstofufólks á Akureyri, Sjómannafélag Eyjafjarðar, Byggiðn og Félag málmiðnaðarmanna Akureyri gáfu sjónvarpið. Höldur lánaði bíl til flutninga og verðmæti hátt á aðra milljón króna. Hollvinasamtökin vilja leggja öllum deildum lið og mismunandi er hvað deildunum hentar. Húsbúnaður í nýju húsnæði deildarinnar þarfnaðist uppfærslu og meiri hlýleika og þakka Hollvinasamtökin öllum þeim sem aðstoðuðu með aðkomu að þessu verkefni á einn eða annan hátt.“
Stólar og borð sem Hollvinir gáfu geðdeildinni til nota í viðtalsherbergjum.