Fara í efni
Fréttir

Barnadeild SAk fær hitakassa frá Hollvinum

Hollvinir Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) komu enn einu sinni færandi hendi í gær og afhentu barnadeild sjúkrahússins formlega nýjan og fullkominn hitakassa af gerðinni Babyleo frá Dräger. 

Kassinn leysir af hólmi eldri gerð sem komin var til ára sinna og ekki lengur hægt að fá varahluti í.

Gjafmildi Hollvina hefur tryggt barnadeildinni þennan nýja og mikilvæga búnað sem mun bæta aðbúnað nýburanna og stuðla að betri umönnun þeirra, segir í tilkynningu frá SAk. „Það er ekki amalegt að fá slíkar gjafir frá Hollvinum og við erum mjög þakklát,“ segir Aðalheiður Guðmundsdóttir, deildarstjóri barnadeildar.

„Nýi hitakassinn er bæði notendavænn og auðveldur í umgengni og mun nýtast afar vel á hágæslu nýbura á barnadeildinni. Á deildina leggjast inn veikir nýburar og fyrirburar sem fæddir eru eftir 34 vikna meðgöngu og eru hitakassar lykilbúnaður í meðferð þeirra,“ segir í tilkynningunni.

Á ári hverju leggjast um 40-60 börn inn á hágæslu nýbura og þurfa þau nánast alltaf að fá fyrstu meðferð í hitakassa. Oftast er um að ræða innlögn strax eftir fæðingu eða á fyrstu dögum eftir hana.

Á myndinni eru, frá vinstri: Jóhannes G. Bjarnason, formaður Hollvina, Hermann Haraldsson, gjaldkeri Hollvina, Jóhann Rúnar Sigurðsson, varaformaður Hollvina, Aðalheiður Guðmundsdóttir, deildarstjóri barnadeildar, Gróa Björk Jóhannesdóttir, yfirlæknir barnalækninga, Elma Rún Ingvarsdóttir, sérfræðingur í barnahjúkrun, Helgi Þór Leifsson, framkvæmdastjóri klínískrar þjónustu og Ragnheiður Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga.

Heimasíða Hollvinasamtaka SAk