Norðanbækur fyrir jólin
Bók er enn algeng jólagjöf og vonandi verður svo í auknum máli, því við þurfum að lesa mikið, ekki bara gömlu bækurnar okkar heldur líka það sem nýtt er. Bókaútgáfan hefur sem betur fer breyst á undanförnum árum þannig að bækur koma ekki eingöngu út síðustu dagana fyrir jól. Nýjar bækur koma á markað allt árið um kring.
Norðlenskir höfundar koma ævinlega við sögu á hverju ári og til gamans eru hér tíndar til nokkrar bækur sem tengjast Norðurlandi, þótt bók komi út annars staðar eða höfundur sé oft fluttur burt.
- Íslensku fuglarnir og þjóðtrúin er splunkuný myndskreytt bók eftir séra Sigurð Ægisson á Siglufirði
- Á Ytri-Á er mögnuð saga Mundínu Þorláksdóttur og Finns Björnssonar á Ytri-Á í Ólafsfirði sem eignuðust 20 börn á 28 árum. Óskar Þór Halldórsson skráði.
- Fæddur til að fækka tárum er mikil bók sem Jón Hjaltason hefur sett saman um Káinn, ævi hans og verk.
- Myndir og minningar er bók með myndum og minningum sem Kristín Aðalsteinsdóttir ritstýrir
- Gljúfrabúar og giljadísir er myndabók á íslensku og ensku eftir séra Svavar Alfreð Jónsson.
- Konan sem datt upp stigann er reynslusaga eftir Ingu Eydal.
- Raddir - annir og efri ár er minningabók sem Kristín Aðalsteinsdóttir og Jón Hjartarson ritstýra.
- Skáldaleyfi er ný ljóðabók eftir Sigmund Erni Rúnarsson.
- Mar er ljóðabók sem Stefán Þór Sæmundsson gaf út fyrr á árinu.
- Milli svefns og vöku er ljóðabók Guðmundar Beck.
- Látra-Björg er bók um ævi og kveðskap Lárta- Bjargar í samantekt Helga Jónssonar
- Hestar er bók fyrir unga og gamla eftir Hjörleif Hjartarson og Rán Flygering.
- Sigríður á Tjörn er minningabók Sigríðar Hafstað.
- Hellirinn er barnabók eftir Hildi Loftsdóttur.
- Í faðmi ljónsins er bók Orra Páls Ormarssonar um ensku knattspyrnuna.
- Pastelbækur eru ritröð í tengslum við Flóru á Akureyri, en fjórar nýjar pastelbækur komu út á árinu, eftir Ármann Jakobsson, Brák Jónsdóttur og Þóri Hermann Óskarsson, Heklu Björt Helgadóttur og Magnús Helgason
- Brennan á Flugumýri er barnabók eftir Önnu Dóru Antonsdóttur.
- Vetrarmein er svo glæpasaga sem gerist á Siglufirði, lokahnykkurinn í röð sagna um Ara lögreglumann. Höfundur er Ragnar Jónasson sem á rætur norður þar.
Þetta er alls ekki tæmandi upptalning og því er réttast að vísa á Bókatíðindi sem hægt er að skoða á vef og svo má nalgast prentaða útgáfu í verslunum N1.
Sverrir Páll Erlendsson kenndi íslensku við Menntaskólann á Akureyri frá 1974 til 2018.