Sungið í sundi og ljósadýrð í bænum
Akureyrarvöku var aflýst í ár en í tilefni 159 ára afmælis Akureyrarbæjar, sem er á sunnudaginn, er þó ýmislegt um að vera; hljómsveitin Súlur hélt til dæmis sönglagatónleika í Sundlaug Akureyrar síðdegis, þar sem laugargestum stóð til boða plastklædd textablöð til að og var fólk hvatt til þess að syngja með.
Blús- og djasstónleikar voru á kaffihúsinu Barr í Hofi og viðburður kvöldsins ber yfirskriftina Ljósin í bænum.
Í tilefni afmælis Akureyrarbæjar verða valin hús lýst á litríkan, listrænan og skemmtilegan hátt, segir í tilkynningu frá bænum. „Vídeólistaverk Heimis Hlöðverssonar, sem var unnið sérstaklega fyrir Menningarhúsið Hof í tilefni 10+1 árs afmælis þess, verður frumsýnt og einnig verður vídeólistaverkum varpað á Listasafnið á Akureyri. Önnur hús sem verða upplýst með ýmsu móti eru Akureyrarkirkja, Glerárkirkja og aðstöðuhús siglingaklúbbsins Nökkva, auk þess sem ljósadýrð verður í Lystigarðinum og víðar um bæinn.“
- Menningarhúsið Hof – Catalysis #2 – Heimir Hlöðversson
- Akureyrarkirkja – Bernharð Már Sveinsson
- Glerárkirkja – Hinrik Svansson
- Listasafnið á Akureyri – Arna Valsdóttir og Sigga Björg Sigurðardóttir
- Aðstöðuhús siglingaklúbbsins Nökkva – Bernharð Már Sveinsson
- Lystigarður Akureyrar – Starfsfólk garðsins og Bernharð Már Sveinsson
- Upplýst svæði um bæinn – Starfsfólk umhverfismiðstöðvar Akureyrarbæjar
Viðburðurinn Ljósin í bænum hefst klukkan níu í kvöld og stendur til klukkan hálf eitt eftir miðnætti.
Hljómsveitin Súlur á sundlaugarbakkanum síðdegis. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson.