Súlur Vertical
Fjallahlaupið Súlur Vertical – MYNDIR
01.08.2021 kl. 10:45
Fjallahlaupið Súlur Vertical fór fram í gær, eins og Akureyri.net greindi frá. Keppt var í þremur vegalengdum í blíðskaparveðri, 18 km, 28 km og fyrsta sinni í 55 km. Ræst var í Kjarnaskógi. Þeir sem fóru tvær styttri vegalengdirnar hlupu upp á Súlur en þeir sem tóku þátt í 55 km „ultra“ hlaupinu fóru á topp Súlna, langan hring um Glerárdal og síðan á topp Hlíðarfjalls. Alls voru 344 skráðir í hlaupið en 283 komu í gegnum endamarkið í göngugötunni. Skapti Hallgrímsson var með myndavélar sínar við endamarkið.