Súlur Vertical
Elma og Jón Gunnar unnu 100 km – MYNDIR
07.08.2023 kl. 19:00
Andrea Kolbeinsdóttir, sem sigraði í 28 km hlaupinu, nálgast endamarkið. Hulda Elma Eysteinsdóttir, sem sigraði í 100 km hlaupinu, og Sonja Björg dóttir hennar hvetja Andreu til dáða. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson
Jón Gunnar Gunnarsson og Hulda Elma Eysteinsdóttir sigruðu í Gyðjunni – 100 km hlaupi í Súlur Vertical fjallahlaupinu á laugardaginn. Í fyrsta sinn var boðið upp á þessa vegalengd og luku 13 karlar þeirra vegalengd og þrjár konur. Þeir keppendur voru ræstir við Goðafoss á föstudagskvöld en aðrir hlupu af stað að morgni laugardags í Kjarnaskógi.
Þátttakendur voru hátt í 500; langflestir hlupu 18 kílómetra, á þriðja hundrað manns, rúmlega 100 fóru 28 km, 51 hljóp 43 km og 16 lögðu 100 kílómetra að baki sem fyrr segir.
Tímar efstu keppenda í hverjum flokki voru sem hér segir:
Gyðjan – 100 km
Karlar:
- Jón Gunnar Gunnarsson 13 klst 26 mín og 50 sek
- Jósep Magnússon 14:06:40
- Jens Kristinn Gíslason 14:14:48
Konur:
- Hulda Elma Eysteinsdóttir 16:11:23
- Rakel Hjaltadóttir 17:19:26
- Sigrún B. Magnúsdóttir 19:47:39
Tröllið – 43 km
Karlar:
- Þorsteinn Roy 4:03:02
- Halldór Hermann Jónsson 4:12:56
- Baldvin Ólafsson 4:25:12
Konur:
- Thelma Björk Einarsdóttir 5:03:21
- Rannveig Oddsdóttir 5:09:05
- Hildur Aðalsteinsdóttir 5:21:29
Súlur – 29 km
Karlar:
- Snorri Björnsson 2:25:59
- Baldvin Þór Magnússon 2:32:51
- Jörundur Frímann Jónasson 2:34:30
Konur:
- Andrea Kolbeinsdóttir 2:41:05
- Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir 3:02:42
- Bergey Stefánsdóttir 3:17:34
Fálkinn – 19 km
Karlar:
- Sigurjón Ernir Sturluson 1:17:40
- Þórólfur Ingi Þórsson 1:19:44
- Logi Ingimarsson 1:20:42
Konur:
- Íris Anna Skúladóttir 1:23:58
- Halldóra Huld Ingvarsdóttir 1:26:34
- Anna Berglind Pálmadóttir 1:27:22
Smellið hér til að sjá myndasyrpu frá krakkahlaupi Súlur Vertical