Fara í efni
Ólafur Þór Ævarsson

Hnífaárásir

Fræðsla til forvarna - XXXIII
 
Árásir með hnífa að vopni hafa hræðilegar afleiðingar og vekja ótta. Því miður virðast slíkar árásir vera að aukast á Íslandi eins og í þeim nágrannalöndum sem við berum okkur saman við. Engin ein orsök er til skýringa, ekki einu sinni aukinn skjátími, en þegar leitað er skýringa með vísindalegum hætti og kannaðir möguleikar á úrbótum þá er það flókið verkefni. Aðferðafræðin felst í að rannsaka alla þá þætti í samfélaginu og félagslegri heilsu sem virðast tengjast versnandi ástandi eða hafi varnandi áhrif. Þessir þættir nefnast áhættuþættir (e. Riskfactors) og forvarnaþættir (e. Preventive factors).
 
Helstu áhættuþættirnir eru: Kyn (strákar frekar en stelpur), aldur (ungir), fátækt, félagsleg staða, ofbeldisinnræting, geðveiki (aðallega vímusjúkdómar), léleg menntun, lítill stuðningur, vanræksla, ofbeldi eða áföll í bernsku, atvinnuleysi eða skortur á möguleikum á virkni og gengjaómenning.
 
Þekktir forvarnaþættir eru: Góð félagsleg geta og félagsleg heilsa ásamt sterkri félagslegri stöðu. Eðlilegt sjálfsmat. Menntun. Góð tengsl við foreldra og fjölskyldu. Jákvæðar fyrirmyndir í vinahópnum. Þátttaka í samfélaginu. Gott aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu.
 
Lausnin er ekki einstaklingsmiðuð því öflugustu forvarnirnar eru það ekki. Þær ættu að beinast að samfélagsgerðinni og sérstaklega bættum hag og félagslegum aðstæðum barnafjölskyldna og unglinga. Rannsóknir sýna að samfélagslegar úrbætur og stefnumörkun stjórnvalda sem draga úr áhættuþáttum eða efla forvarnaþætti hafa raunveruleg og góð áhrif. Hér gagnast samt engar skyndilausnir. Þetta er best gert með áætlunum til lengri tíma, sem beinast með skipulögðum hætti að rótum vandans (sem birtast í áhættuþáttunum) og skýrri stefnu stjórnvalda um félagslega þætti sem bæta hag barnafjölskyldna, gefa ungu fólki aukin tækifæri og auðvelda uppalendum, kennurum og meðferðaraðilum að rækja hlutverk sitt og skyldur sem allra best.
 
Hugsum til framtíðar. Það er vel mögulegt að gera betur.
 
Ólafur Þór Ævarsson er geðlæknir

Traust

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
05. október 2024 | kl. 06:00

Hrós

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
14. september 2024 | kl. 11:00

Reiði

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
12. september 2024 | kl. 08:50

Sjálfbærni

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
07. september 2024 | kl. 09:00

Samfélagsábyrgð fyrirtækja

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
06. september 2024 | kl. 22:00

Ákall

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
16. ágúst 2024 | kl. 18:00