Fara í efni
Minjasafnið á Akureyri

Veisluskraut Heiðdísar Hólm á Listasafninu

SÖFNIN OKKAR – XXXVII

Frá Listasafninu á Akureyri_ _ _

Akureyri.net heldur áfram að opna dyr safnanna í bænum lesendum til fróðleiks og skemmtunar. Það er gert vikulega, á fimmtudögum. 

Heiðdís Hólm
Veisluskraut
2024
Olía á birki

Heiðdís Hólm útskrifaðist af fagurlistadeild Myndlistaskólans á Akureyri 2016 og er með PgDip í myndlist frá Glasgow School of Art 2020. Á Listasafninu á Akureyri stendur nú yfir hennar fyrsta einkasýning á safni, Vona að ég kveiki ekki í, en Heiðdís hefur einnig haldið og tekið þátt í ýmsum einka- og samsýningum og hátíðum á Íslandi og í Evrópu. Hún er búsett á Seyðisfirði og starfar hjá LungA skólanum.

Verkið Veisluskraut frá 2024 má sjá á áðurnefndri sýningu og er eitt af þeim sem Listasafnið festi nýlega kaup á fyrir styrk úr Listaverkasafni Valtýs Péturssonar. Einnig voru keypt verk eftir Sigurð Atla Sigurðsson og Söru Björgu Bjarnadóttur.

Heiðdís Hólm er myndlistarkona sem vinnur með margs konar miðla, þar á meðal málverk, teikningu og gjörninga. Í verkinu leitar hún að húmornum í dramatíkinni eða dramatíkinni í húmornum og ójafnvæginu sem þar ríkir. Verk hennar endurspegla margbreytileika mannlegs ástands, áhrif manns á náttúru og afleiðingar þeirra áhrifa. Útgangspunktur verkanna er oft persónulegar upplifanir og minningar sem verða hráefni ferlisins, sem sveiflast á milli léttúðugrar ýkju, myrkrar sjálfsskoðunar og sköpunar skáldaðra frásagna.