Fara í efni
Minjasafnið á Akureyri

Leiðsagnir og smiðja á Listasafninu um helgina

Verk eftir Jónas Viðar t.v. og verk eftir Fríðu Karlsdóttur t.h. Leiðsögn verður um sýningar verka eftir þau á laugardaginn. Mynd: Facebook síða Listasafnsins

Helgin verður stútfull af fræðslu fyrir unga sem aldna á Listasafninu á Akureyri. Á laugardag verður boðið upp á leiðsögn um tvær sýningar safnsins; Ekkert nema mýktin, sýning Fríðu Karlsdóttur og safneign verka eftir Jónas Viðar. Leiðsögning hefst kl. 15.00 í safninu. Aðgangur er innifalinn í miðaverði Listasafnsins.

Á sunnudeginum verður leiðsögn um sýningarnar Augnablik - til baka og Átthagamálverkið. Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, verkefnastjóri fræðslu og miðlunar, sér um leiðsögnina og eftir á verður í boði smiðja, þar sem hægt verður að skapa listaverk í anda þeirra sem fyrir augu bar á sýningunum. Fjölskylduvænn sunnudagur á safninu okkar, þar sem hægt er að komast í snertingu við list og sköpun í góðum hópi. 

Átthagamálverkið er sýning þar sem sýnd eru verk eftir þrjátíu listamenn frá Norðausturlandi, en ólíkir staðir landshlutans og stundarkorn úr lífum listamannanna birtast ljóslifandi. Augnablik - til baka er sýning verka eftir Sólveigu Baldursdóttur myndhöggvara. 

Viðburðirnir á Facebook: Laugardagur, leiðsögn // Sunnudagur, leiðsögn og smiðja.

T.v. Hluti af sýningunni Átthagamálverkið.  T.h. Hluti af sýningu Sólveigar Baldursdóttur. Mynd: Facebook síða Listasafnsins.

Meiri upplýsingar um sýningarnar sem verða viðfangsefni leiðsagnarinnar á laugardeginum (texti frá facebook síðu Listasafnsins):
 
Fríða Karlsdóttir (f. 1994) útskrifaðist af myndlistarbraut Gerrit Rietveld Academie í Amsterdam í Hollandi 2020. Hún býr og starfar á Akureyri, þar sem hún er hluti af sjálfstæða listhópnum Kaktus, sem stendur fyrir margs konar menningarstarfsemi í Ketilhúsinu á neðstu hæð Listasafnsins. Fríða vinnur með sögusagnir í gegnum blandaða miðla, vídeóverk, skúlptúra, textaverk og ýmiss konar handverk. Verk hennar líkjast oft náttúrulegum fyrirbærum, þau innihalda sterkar táknmyndir og þannig dramatíserar hún hversdagsleikann og segir frá einlægum upplifunum. Fríða hefur sýnt bæði hér á landi og erlendis.
 
Jónas Viðar Sveinsson (1962-2013) stundaði nám við Myndlistaskólann á Akureyri 1983-1987 og framhaldsnám á Ítalíu 1990-1994. Jónas var virkur í sýningarhaldi, kenndi við Myndlistaskólann á Akureyri og vann ýmis verkefni fyrir Leikfélag Akureyrar. Hann hélt yfir 40 einkasýningar á Íslandi og erlendis og tók þátt í fjölda samsýninga. Á ferlinum gerði Jónas ýmsar tilraunir í myndlist. Í elstu verkunum er fíguratífur mannslíkaminn áberandi, en síðar urðu kyrrð og fegurð í íslensku landslagi allsráðandi; sjóndeildarhringurinn, hafið, land, fjöll og eyjar. Nokkurn fjölda verka eftir Jónas er að finna í safneign Listasafnsins á Akureyri og má sjá hluta af þeim á þessari sýningu.