Þyrlan TF - LÍF kemur norður á Flugsafnið
Nú liggur fyrir að björgunarþyrlan TF - LÍF verður flutt til Akureyrar á næstunni þar sem hún verður til sýnis í Flugsafni Íslands um ókomin ár ásamt öðrum merkum vélum íslenskrar flugsögu. Morgunblaðið segir frá þessu í dag.
TF - LÍF kom til landsins árið 1995 og var í notkun fram til 2020. Alls voru það 1.565 manns sem var bjargað eða fluttir í sjúkraflugi með þyrlunni á 25 ára tímabili. Hún á því einstakan sess í björgunarsögu Íslands, að því er segir í Morgunblaðinu.
Ríkiskaup seldu TF - LÍF á síðasta ári og var kaupandinn sænskt fyrirtæki, EX-Change Parts AB. Svíarnir tóku úr þyrlunni þá hluti sem þeir töldu nýtilega en færðu að því búnu Flugsafni Íslands á Akureyri þyrluna að gjöf.
Smellið hér til að sjá nánar á mbl.is.