Fara í efni
KA/Þór

Einvígi Þórs og Vals hefst í Höllinni í kvöld

Emma Karólína Snæbjarnardóttir kemst af miklu harðfylgi í gott færi í sigurleik gegn Val í desember í Íþróttahöllinni. Myndir: Skapti Hallgrímsson

Það er veisla fram undan í Íþróttahöllinni á Akureyri og Valsheimilinu að Hlíðarenda næstu daga því í kvöld hefst einivígi Þórs og Vals í átta liða úrslitum Íslandsmóts kvenna í körfuknattleik, Bónusdeildarinnar. Þór byrjar einvigið á heimavelli þar sem liðið endaði í 4. sæti Bónusdeildarinnar, en Valur í 5. sætinu. 

Þessi lið unnu hvort sinn leik í deildarkeppninni í vetur, fyrir tvískiptingu. Valur vann með fimm stiga mun á sínum heimavelli í byrjun október, en Þór svaraði með fimm stiga sigri á Akureyri í desember. Þór vann svo leik liðanna í A-hluta deildarinnar í byrjun mars með sex stiga mun á Akureyri.

Það má því búast við jöfnu og spennandi einvígi liðanna á næstu dögum, en meiðslalisti Þórs veldur þó helst áhyggjum, þrátt fyrir frábæra frammistöðu hjá löskuðu Þórsliði í naumu tapi fyrir Keflvíkingum í lokaumferð A-hluta deildarinnar fyrir skemmstu.

  • Bónusdeild kvenna í körfuknattleik – átta liða úrslit – leikur 1
    Íþróttahöllin á Akureyri kl. 18:30
    Þór - Valur

Næstu leikir verða síðan laugardaginn 5. apríl í Reykjavík, miðvikudaginn 9. apríl á Akureyri og svo ef þarf, sunnudaginn 13. apríl í Reykjavík og miðvikudaginn 16. apríl á Akureyri. Vinna þarf þrjá leiki til að fara áfram í undanúrslit Íslandsmótsins. Sigurlið einvígisins mætir sigurliðinu úr einvígi deildarmeistara Hauka og Grindavíkur.

  • Vert er að geta þess að söngkonan Tinna Óðinsdóttir, sem tók þátt í Söngvakeppni Sjónvarpsins á dögunum, tekur lagið í hálfleik í kvöld.