Brúsaburður

EYRARPÚKINN - 28
Það voru ófáar ferðirnar í Ránargötu 10 eftir mjólkinni sem borin var heim á brúsum og flöskum.
Taldi ég ekki sporin í búðina og yfirgaf sjaldan Ránargötuna tómhentur heldur vældi gottið út úr mömmu framan af en skaffaði mér svo á ýmsa vegu með vaxandi þroska.
Rámar mig í glærar mjólkurflöskur álkulegar og þegar ausið var með könnum úr kerum á brúsa. Svo komu belgvíðu brúnu flöskurnar að gæta gerla og var gaman að horfa í gegnum þær tómar í gluggasyllu.
Tappar úr álpappír. Silfurlitur fyrir mjólkina, grænn súrmjólk, rjóminn gylltur en undanrennan blá. Flöskurnar heils- og hálfspotts og minni fyrir rjómann.
Svo var farið að dæla á brúsana úr vélum og hlupu upp bláhvítir pollar á taflborði kjörbúðargólfsins kringum kranana fyrir lokun.
En allt slampaðist þetta og maður bar fjögra lítra járnbrúsann í hægri hendi og þann þriggja lítra úr álinu í þeirri vinstri.
Og þótti búbót þegar tíulítrabeljurnar komu með krana. Kallaðist kassinn Búkolla og var tyllt á neðstu búrhilluna og svalandi að láta renna oní sig úr blessaðri kúnni.
Jóhann Árelíuz er rithöfundur og skáld.
- Brúsaburður er kafli úr Eyrarpúkanum, gáskafullu skáldverki sem gerist á Eyrinni á Akureyri um miðja síðustu öld. Bókin kom út 2003.


Kári og Skúli

Hádegislúrinn

0-1

Gosdrykkjan
