Arnór Þór og Oddur fara báðir á HM
Arnór Þór Gunnarsson og Oddur Gretarsson eru báðir í landsliðshópi Íslands fyrir heimsmeistaramótið í handbolta sem fram fer í Egyptalandi í janúar. Guðmundur Þórður Guðmundsson, landsliðsþjálfari, tilkynnti 21 leikmanna hóp í morgun.
Sami hópur leikur gegn Portúgal í undankeppni næsta Evrópumóts, sem fram fara rétt fyrir HM – 6. janúar í Portúgal og 10. janúar á Ásvöllum í Hafnarfirði. Fyrsti leikur Íslands á HM á HM, 14. janúar, verður svo við ... Portúgal. Alveg satt!
Arnór Þór hefur verið fastamaður í landsliðinu undanfarin ár, og einn lykilmanna, en Oddur hefur verið viðloðandi hópinn annað slagið og ekki farið á stórmót síðan 2011. Hann var með liðinu á HM í Svíþjóð 2011 og á EM í Serbíu 2012 en lék nánast ekki neitt.
„Það er auðvitað gaman og mikill heiður að vera valinn í landsliðið. Ég hlakka til að fá tækifæri til þess að sýna mig og hjálpa liðinu í þessum verkefnum,“ sagði Oddur við Akureyri.net í morgun. Tvímenningarnir léku báðir með yngri flokkum Þórs og meistaraflokki félagsins. Oddur lék síðan með liði Akureyrar áður en hann hélt utan en Arnór fór til Vals sumarið sem Akureyrarliðið var stofnað.
Landsliðshópurinn er þannig skipaður:
Markverðir: Björgvin Páll Gústavsson, Haukum, Ágúst Elí Björgvinsson, Kolding og Viktor Gísli Hallgrímsson, GOG.
Vinstra horn: Bjarki Már Elísson, Lemgo og Oddur Gretarsson, Balingen.
Skyttur vinstra megin: Aron Pálmarsson, Barcelona, Magnús Óli Magnússon, Val og Ólafur Guðmundsson, Kristianstad.
Miðjumenn: Elvar Örn Jónsson, Skjern, Gísli Þorgeir Kristjánsson, Magdeburg og Janus Daði Smárason, Göppingen.
Skyttur hægra megin: Alexander Petersson, Rhein-Neckar Löwen, Viggó Kristjánsson, Stuttgart, Kristján Örn Kristjánsson, Aix og Ómar Ingi Magnússon, Magdeburg.
Hægra horn: Arnór Þór Gunnarsson, Bergischer og Sigvaldi Björn Guðjónsson, Kielce.
Línumenn: Arnar Freyr Arnarsson, Melsungen, Elliði Snær Viðarsson, Gummersbach, Kári Kristján Kristjánsson, ÍBV og Ýmir Örn Gíslason, Rhein-Neckar Löwen.