Fara í efni
Golf

Þörf fyr­ir tæp­lega 200 íbúð­ir á ári á Akureyri

Áætlað er að íbúum á Akureyri fjölgi um 1.147 manns á næstu 5 árum, sem er fjölgun um 5,6 prósent. Fjöldi íbúða í byggingu í dag er ekki í takt við fólksfjölgun og áætlaða fjölskyldustærð í sveitarfélaginu.

Akureyrarbær hefur staðfest endurskoðun á húsnæðisáætlun sveitarfélagsins fyrir árið 2025. Spáð er að íbúum sveitarfélagsins fjölgi um 2.358 manns á næstu tíu árum, sem er 11,6 prósent aukning. Til samanburðar hefur íbúum í sveitarfélaginu fjölgað um 1.169 frá árinu 2020 eða um 6 prósent og því er spá Akureyrarbæjar eilítið varfærnari en hefur raungerst síðastliðin ár. Þetta kemur fram á vef Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, hms.is

 

Fjöldi íbúða í byggingu ekki í takt við íbúðaþörf

Samkvæmt húsnæðisáætluninni er gert ráð fyrir að þörf verði fyrir um 195 íbúðir á ári, 980 íbúðir á næstu 5 árum og 1.946 íbúðir næstu 10 ár. Til samanburðar þá hefur fullbúnum íbúðum fjölgað að meðaltali um 137 á ári síðastliðin 5 ár.  Samkvæmt síðustu talningu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar voru 248 íbúðir í byggingu í september 2024. Þessi tala er lítillega lægri en á sama tíma síðustu tvö ár.  Fjöldi íbúða í byggingu er ekki í takt við íbúðaþörf, það þyrftu að vera nær 400 íbúðir í byggingu til þess að mæta íbúðaþörf ef miðað er við tveggja ára byggingartíma.

Á þessari mynd má sjá að stór hluti íbúða í byggingu á Akureyri er á framvindustigi 4, sem þýðir að íbúðirnar eru orðnar fokheldar. Sveitarfélagið stefnir að úthlutun lóða fyrir 1.353 íbúðir á næstu 5 árum til að tryggja nægt framboð. Mynd: hms.is

Fjölbreytt uppbygging nýrra hverfa

Á vef HMS segir að Akureyrarbær vinni markvisst að fjölbreyttri uppbyggingu nýrra hverfa með því að tryggja framboð lóða fyrir einbýlishús, parhús, raðhús og fjölbýlishús í hlutföllum sem endurspegla eftirspurn hverju sinni. Sérstök áhersla er lögð á leigu- og búseturéttaríbúðir reknar án hagnaðarkröfu, sem fá skilgreindan forgang og dreifast á milli svæða. Þá gegnir sveitarfélagið mikilvægu hlutverki í félagslegri þjónustu á Norðurlandi og mun áfram byggja upp húsnæði tengt þeirri starfsemi í samstarfi við ríkið og önnur sveitarfélög. Jafnframt er lögð áhersla á þéttingu byggðar, endurnýtingu lóða og vistvæna skipulagningu sem stuðlar að styttri ferðaleiðum og minni bílanotkun. Þróunin sýnir að hlutfall fjölbýlishúsa eykst á kostnað sérbýlis og er líklegt að þessi þróun muni halda áfram.

 

Lóðaframboð fyrir vaxandi íbúðaþörf

Akureyrarbær hefur skipulagt lóðir fyrir 2.596 íbúðir og á næstu 5 árum stefnir sveitarfélagið að því að úthluta lóðum fyrir allt að 1.353 íbúðir. Lóðaframboð ætti því að mæta vel áætlaðri íbúðaþörf gangi úthlutunaráætlanir eftir. Sé hins vegar litið til stöðu lóðanna í skipulagi þá er umtalsverður fjöldi þeirra tilgreindur sem framtíðarsvæði, en skipulagsferlið getur verið tafsamt og því mikilvægt að skipulagsáætlanir standist svo hægt verði að byggja nýjar íbúðir svo ekki komi niður á vaxtarhorfum sveitarfélagsins.