Fara í efni
Gervigreind

Björg EA gerði 4678 metra hátt jólatré!

Stærsta jólatré sem Akureyri.net hefur frétt af var búið til í Eyjafjarðarál í gærkvöldi – 4678 metra hátt og 5346 metra breitt! Að vísu er ekki um heðbundið jólatré að ræða heldur uppátæki skipstjórnenda á Björgu EA7, einu skipa Samherja.

„Kjartan Vilbergsson yfirvélstjóri á Björgu kom með þá hugmynd á landleiðinni að reyna að teikna jólatré,“ skrifar skipstjórinn, Árni Rúnar Jóhannesson, á Facebook síðun og bætir við: „Áskorun tekið og við sigldum jólin inn!!“

Árni Rúnar segir skipverja á Björgu EA7 halda að jólatréð þeirra sé það stærsta á Íslandi: „Það er 4678 metra hátt og 5346m breitt (svolítið í stíl við mig, lágreist og þétt á velli). Verkið tók tvo og hálfan klukkutíma og á einni myndinni sést Grímsey, þá er betra að átta sig á stærð jólatrésins okkar.“

Rauður hringur er dreginn um Grímsey að ofan. „Á myndunum sést ferlið ágætlega, allt frá siglingaleiðinni og að fullkomnu verki. Setti meira að segja réttu litina á það“

Með tæknina mér við hlið: Hlutverk gervigreindar í skólastarfi

Ástrós Guðmundsdóttir skrifar
07. janúar 2025 | kl. 17:30

Aðventa

Magnús Smári Smárason skrifar
10. desember 2024 | kl. 16:16

Magnús verkefnastjóri í gervigreind við HA

Skapti Hallgrímsson skrifar
03. desember 2024 | kl. 15:40

Stafræn ragnarök: Opinberun nýrra tíma

Magnús Smári Smárason skrifar
19. nóvember 2024 | kl. 17:30

Lýðræði á tímum gervigreindar

Magnús Smári Smárason skrifar
30. október 2024 | kl. 11:45

Nokkur heilræði varðandi gervigreind

Magnús Smári Smárason skrifar
01. október 2024 | kl. 09:30