Fyrirtækið Heilsuvernd
Samið við Heilsuvernd um hjúkrunarheimilin
15.04.2021 kl. 11:20
Hjúkrunarheimilið Lögmannshlíð í Glerárhverfi
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur staðfest samning sem gerður hefur verið milli Sjúkratrygginga Íslands og Heilsuvernd hjúkrunarheimili um rekstur Öldrunarheimila Akureyrar, (ÖA). Þetta kemur fram í frétt N4 rétt í þessu. Heilsuvernd tekur við rekstrinum um næstu mánaðamót, segir í fréttinni.
Nánar hér á vef N4.
Heilsuvernd er einkarekið fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu sem hefur sérhæft sig í heilsu- og vinnuverndarstörfum. Það rekur m.a. heilsugæslustöðina í Urðarhvarfi í Kópavogi.