Flokkur fólksins
Skipa samninganefnd vegna Blöndulínu 3
15.01.2024 kl. 13:00
Móahverfið nýja verður þar sem græni hringurinn er dreginn. Rauða línan sýnir um það bil hvernig Blöndulína 3 mun liggja að Rangárvöllum. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson.
Bæjarráð Akureyrar hefur stofnað samninganefnd vegna Blöndulínu 3 að ósk Landsnets. Nefndin mun ræða við félagið um lagningu fyrirhugaðrar línu innan bæjarmarkanna.
Samninganefndina skipa bæjarfulltrúarnir Halla Björk Reynisdóttir og Sunna Hlín Jóhannesdóttir auk Péturs Inga Haraldssonar skipulagsfulltrúa.
Akureyri.net hefur fjallað ítarlega um Blöndulínu 3 á síðustu misserum.
Landsnet gerir ráð fyrir loftlínu í landi Akureyrar allt að spennistöð á Rangárvöllum, athafnasvæði Norðurorku við Hlíðarfjallsveg, þegar Blöndulína 3 verður lögð.
Fari svo mun línan liggja ofan Giljahverfis og hins nýja Móahverfis. Það samræmist ekki aðalskipulagi Akureyrar og bæjarfulltrúar voru margir harðir á því fyrir síðustu kosningar að línuna yrði að leggja í jörð því því mikilvægt væri skerða ekki möguleikann til frekar stækkunar byggðar.