Í veikindaleyfi eða yrði rekinn ella
Miklar deilur eru á meðal forystumanna Flokks fólksins á Akureyri, eins og fram kom í gær. Aðalstjórn flokksins fundaði um málið í gærkvöldi en ekkert var ákveðið um framhaldið.
Jón Hjaltason, sagnfræðingur, þriðja maður á lista Flokks fólksins við bæjarstjórnarkosningarnar á Akureyri í vor, segir Ingu Sæland, formann flokksins, hafa „kynt undir“ deilur í síðustu viku þegar hún sagði að oddviti flokksins í bænum, Brynjólfur Ingvarsson, yrði að fara í veikindaleyfi, ella yrði hann rekinn.
Þrjár konur á listanum fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor, Málfríður Þórðardóttir, Tinna Guðmundsdóttir og Hannesína Scheving Virgild Chester, sögðust hafa verið lítilsvirtar og hunsaðar af körlum í flokknum. Á trúnaðarfundum flokksins hafi þær verið sagðar of vitlausar eða jafnvel geðveikar til að vera marktækar.
Tveir kostir
Jón segir í samtali við mbl.is: að á þriðjudag í síðustu viku hafi verið boðað til fundar, Brynjólfur hafi ekki getað mætt og konurnar þrjár tekið því illa.
„Þennan sama dag hringdi Inga Sæland [formaður Flokks fólksins] og talaði um nauðsyn þess að Brynjólfur færi frá og sagði að klukkan fimm þennan sama dag ætlaði stjórnin í Reykjavík að funda og þar yrði Brynjólfi gefnir tveir kostir. Þá segir hún við mig að annað hvort fari Brynjólfur í veikindaleyfi eða hann verði rekinn. Þetta sagði hún ítrekað við mig,“ segir Jón Hjaltason við mbl.is.
Jón segir deiluna undanfarna daga og vikur hafa snúist um það hvort Brynjólfur færi í veikindaleyfi eða ekki.
„Þær, þessar konur, hafa sótt það afar hart að hann færi í veikindaleyfi og segjast bera hag hans fyrir brjósti. Svo er fundað á þriðjudaginn seinasta og það kemur ekkert út úr þeim fundi.“
Lamdi í borðið – vildi svar ...
Daginn eftir var annar fundur. „Þar mætum við, ég, Brynjólfur, Tinna og Málfríður. Þar heldur Málfríður langa ræðu um ágæti Brynjólfs og hvað henni þyki vænt um hann. Ég leyfi mér þá að spyrja hana hvort henni þyki rétt og viðeigandi að ræða hans starfslok í bæjarstjórn að honum fjarverandi eins og þau gerðu daginn áður,“ segir Jón við mbl.is.
„Ég þríendurtek þá spurningu og hún svarar ekki. Það endar með því að ég lem í borðið og segist vilja fá svar en þá gengur hún á dyr, grátandi að eigin sögn,“ segir hann og bætir við að Málfríður hafi komið grátandi á fundinn.
„Hún kom illa stemmd á fundinn og fór illa stemmd. En ég barði í borðið og heimtaði svar og það er sá illvilji sem þær tala um.“
Spurður hvar rót ágreinings flokksins á Akureyri liggi segir hann að konurnar hafi gert mikið úr því að Brynjólfur hafi verið ýmist að hætta eða ekki hætta í bæjarstjórn.
„Hann sagði í upphafi að hann myndi ekki sitja út tímabilið. Kannski í tvö ár og skipta svo við Málfríði. Svo gerist það fyrir tveim vikum að hann fékk fyrir hjartað þannig að hann lét okkur vita að hann yrði núna að hætta.
Svo kom í ljós að þetta var ekki alvarlegt þannig að hann lét okkur vita á fundi að þetta hafi ekki verið neitt alvarlegt svo hann myndi halda áfram. En þetta sat einhvern veginn í þeim þannig að þær hafa sett það á oddinn að hann færi í veikindafrí.“
Jón segist ímynda sér að ofbeldið sem rætt er um sé það þegar hann barði í borðið. Tal um kynferðislegt ofbeldi sé honum hins vegar hulin ráðgáta.
Spurður út í meintar hótanir Brynjólfs í garð kvennanna segir Jón við mbl.is:
„Hann sendi bréf á átta eða tíu flokksmenn þar sem hann fór nokkuð hörðum orðum um þennan samskiptamáta okkar.“ Hann segir málið afskaplega leiðinlegt. „Menn hafa ekkert náð að vinna almennilega saman, það verður bara að viðurkennast.“
Smellið hér til að lesa frétt mbl.is