Dagur gerði 4 mörk og Montpellier sigraði
![](/static/news/lg/dagur-fagnar.jpg)
Handboltamaðurinn Dagur Gautason gerði fjögur mörk í fyrsta leiknum með Montpellier Handball í Frakklandi í kvöld. Liðið sigraði þá nágrannaliðið PAUC frá Aix 33:31 í átta liða úrslitum bikarkeppninnar. Dagur og félagar eru þar með komnir í undanúrslit.
Dagur gekk óvænt til liðs við stórlið Montpellier frá Arendal í Noregi í byrjun vikunnar eins og Akureyri.net sagði frá mánudagskvöldið – sjá hér.
Montpellier, sem var á heimavelli í kvöld, byrjaði mun betur en staðan var þó jöfn í hálfleik, 16:16. Heimamenn höfðu fjögurra til sex marka forystu lungann úr seinni hálfleik en gestirnir minnkuðu muninn aftur. Eftir að PAUC skoraði hálfri mínútu fyrir leiks var staðan 32:31 en það var Dagur sem gulltryggði sigurinn með síðasta marki leiksins þegar fimm sekúndur voru eftir.
Góð byrjun þetta hjá Degi.
Leikmenn Montpellier eftir sigurinn í kvöld. Dagur situr á hækjum sínum hægra megin við lukkudýrið. Mynd af X reikningi Montpellier Handball.